Akademían

16.2.2010 Akademían : Fótboltaakademían fellur niður á öskudag

Akademían í fyrramálið, á öskudag, fellur niður. Lesa meira
 

14.1.2010 Akademían : 10.bekkur - verkefni

Lestur dagblaða í eina viku. Hópurinn skilar verkefni í næsta tíma. Hvernig sjáið þið þessi atriði fyrir ykkur? Hvaða greinar íþrótta fá mesta umfjöllun? Úrslit leikja eða aukaatriði sem ekki skipta máli Lesa meira
 

5.1.2010 Akademían : 2010 - Stundaskráin klár

Íþrótta- og heilsuakademían hefst í dag, þriðjudaginn 5.janúar aftur eftir jólafrí. Í dag er bóklegur tími hjá 10.bekk. Næsti tími er á föstudaginn með bóklegum tíma hjá 9.bekk. Með því að smella á lesa meira sjáið þið næstu viku einnig. Lesa meira
 

18.11.2009 Akademían : Handboltaakademía - Verkefni næstu vikna

Einkunnagjöf fyrir æfingar

Leikmaður gefur sér einkunn fyrir æfingu frá 1 - 5.

1 Slökkt á ljósunum
2 Var úti á þekju
3 Var sæmilegur, þjálfarinn þurfti að ýta við mér nokkuð oft
4 Var vel vakandi, hvatti félagana áfram. Var virkur að leggja mig fram
5 Með á nótunum allan tímann

Lesa meira
 

12.11.2009 Akademían : Handboltakademían byrjar aftur í næstu viku

Í næstu viku, 16.nóvember hefst handboltaakademían aftur. Næstu tvær vikur verður eingöngu handbolti. Verklegir tímar á mánudögum og miðvikudögum og bóklegur tími fyrir 10.bekk á þriðjudögum og bóklegur tími fyir 9.bekk á föstudögum. Lesa meira
 
Larusi_afhent_verdlaunin

5.11.2009 Akademían : Gróttuverkefnið

Föstudaginn 30.október sl. þá var lagt fyrir verkefni í akademíunni. Um var að ræða Gróttuverkefni til að kanna vitneskju nemenda á sögu og starfi Gróttu. Misskiliningur hefur orðið vegna þess að nemendur héldu að þetta verkefni færi beint inn í einkunn nemenda. Hið rétta er að þetta verkefni gildir eingöngu til hækkunar á einkunn. Lesa meira
 

4.11.2009 Akademían : Verkefni föstudagsins í fótboltanum

Fótboltadrengir eiga að vinna verkefni sem þeir síðan kynna fyrir hópnum í tímanum á föstudaginn. Efnið er hreyfing án bolta. Grunnatriði í hreyfingu án bolta. Lykilhugtök sem búið var að fara í verklegu tímum vikunnar. Fimm glærur amk í powerpoint. Fínt að hafa skýringarmyndir með. Lesa meira
 

29.10.2009 Akademían : Bókleg akademía á föstudaginn

Á föstudaginn verður bókleg akademía eins og planið segir til um. Skv. prógramminu átti að vera gestafyrirlesari en í hans stað verður bóklegt verkefni. Tíminn verður þess vegna með þeim hætti að verkefnið verður kynnt og síðan skulu nemendur leysa verkefnið. Eins og góðum verkefnum sæmir þá eru vegleg verðlaun í boði fyrir þann/þá/þær sem leysa það best ! Tíminn byrjar á slaginu! Lesa meira
 

18.10.2009 Akademían : Fótboltaakademía og handboltaakademía á morgun, 19.okt

Það er bæði handboltaakademía og fótboltaakademía í fyrramálið. Fótboltinn verður í litla sal og handboltinn í stóra sal. Lesa meira
 

13.10.2009 Akademían : Fótboltaæfingin fellur niður á morgun

Fótboltaæfingin 14.okt fellur niður vegna starfskynninga í skólanum. Lesa meira
 

2.10.2009 Akademían : Fótboltaæfingarnar í október

Æfingarnar í október verða inni í stóra sal íþróttahússins. Fyrsta æfingin er mánudaginn 5.október. Látið berast. Lesa meira
 

30.8.2009 Akademían : Verklegur fótbolti - 1.tími

Á mánudagsmorgun kl. 6:40-8:00 verður fyrsti verklegi fótboltatíminn. Krakkarnir skulu mæta bæði með útidót og innidót eins og ALLTAF í vetur. Lesa meira
 

28.8.2009 Akademían : 1.tíminn í akademíunni

Í dag, föstudag, var fyrsti tíminn í akademíunni. Farið var yfir helstu atriðin fyrir veturinn og skipulagið. Krakkarnir fengu stundaskrá fyrir veturinn í akademíunni og blað yfir innihald allra tíma og verkefnaskil. Stundaskránna má sjá hérna. Skipulag allra tíma má sjá hér. Lesa meira
 
Grotta

25.8.2009 Akademían : EKKI tími í Íþrótta- og heilsuaakademíu Gróttu

Einhver misskilingur hefur verið á milli okkar í Gróttu og Valhúsaskóla varðandi Íþrótta- og heilsuakademíuna í þessari viku. Það rétta er að ÞAÐ ER EKKI TÍMI í fyrramálið í Akademíunni (miðvikudagsmorgun). Fyrsti tíminn í Akademíunni er þess vegna á föstudaginn kl. 13:10-13:50 í Íþróttahúsinu. Sá tími er bóklegur og verður í þeim tíma farið yfir skipulagið í vetur. Lesa meira
 
Grotta

22.8.2009 Akademían : Fyrsti Akademíutíminn föstudaginn 28.ágúst kl. 13:10

Fyrstu akademíutíminn verður föstudaginn 28.ágúst kl. 13:10-13:50. Allir nemendur akademíunnar skulu mæta. Farið verður í skipulagið í vetur en það verður með breyttu sniði þetta árið. Lesa meira
 

Útlit síðu:



handbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.