Akademían
Gróttuverkefnið
Íþrótta- og heilsuakademía Gróttu
Föstudaginn 30.október sl. þá var lagt fyrir verkefni í akademíunni. Um var að ræða Gróttuverkefni til að kanna vitneskju nemenda á sögu og starfi Gróttu. Misskiliningur hefur orðið vegna þess að nemendur héldu að þetta verkefni færi beint inn í einkunn nemenda. Hið rétta er að þetta verkefni gildir eingöngu til hækkunar á einkunn.
Hæst var hægt að fá 59 stig í þessu verkefni og náði einn nemandi 45,5 stigum (7,7 í einkunn), hann Lárus Gunnarsson. Í öðru sæti var Egill Ploder Ottósson með 36 stig eða 6,1 í einkunn og í 3.sæti varð Gunnar Kolbeinsson með 32,5 stig eða 5,5 í einkunn. Taka skal það fram að þetta var erfitt verkefni og meðaltal var 4,2.
Þessir þrír nemendur fá verðlaun fyrir góða einkunn við fyrsta tækifæri.

