Um fimleikadeildina

Fimleikadeild Gróttu býður upp á fimleika sem afreksíþrótt, en einnig er lögð áhersla á að koma á móts við almenna iðkendur sem geti þannig æft fimleika eftir getu og áhuga. Í fimleikadeildinni eru í boði grunnfimleikar fyrir stúlkur og drengi frá þriggja ára aldri, áhaldafimleikar fyrir stúlkur frá 9 ára aldri og hópfimleikar og stökkfimi fyrir stúlkur og drengi frá 9 ára aldri.

Iðkendur í deildinni veturinn 2013 - 2014 eru um 550. Fimleikar eru ein besta alhliða líkamsþjálfun sem býðst, þar sem saman fara samhæfing hreyfinga, liðleiki og snerpa. Mæla má með því að öll börn æfi fimleika sem góðan undirbúning fyrir aðrar íþróttir.

Fyrirspurnir má senda á netfang fimleikadeildar: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Formaður fimleikadeildarinnar er Guðrún Edda Haraldsdóttir

 

Sesselja Järvelä  er yfirþjálfari og framkvæmdastjóri fimleikadeildar Gróttu

Sími á skrifstofutíma er 561 1137


Formenn fimleikadeildarinnar frá upphafi:
Hildigunnur Gunnarsdóttir
Guðrún Vilhjálmsdóttir
Margrét Einarsdóttir
Þuríður Halldórsdóttir
Margrét Einarsdóttir
Gunnar Lúðvíksson
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Margrét Pétursdóttir
Jórunn Þóra Sigurðardóttir
Friðrika Harðardóttir
Ásta Sigvaldadóttir
Hildur Sesselja Aðalsteinsdóttir
Guðrún Edda Haraldsdóttir

  • Á döfinni

  • Grótta TV

  • Grótta - Valur olís deild kvenna (Lau, 14. feb)
  • Fram - Grótta Olís deild kvenna (Lau, 21. feb)
  • Grótta - Selfoss Olís deild kvenna (Mið, 04. mar)
  • Grótta - FH Olís deild kvenna (Lau, 07. mar)
Meira...
left direction
right direction

Flýtileiðir