Frístundakort

Frístundakort

Frístundakort ÍTR

Aðalstjórn

14.12.2007

Í september 2007 var tekið í notkun nýtt styrkjakerfi, Frístundakort, vegna tómstunda barna og unglinga 6 til 18 ára í Reykjavík. Haustið 2007 nam styrkur á hvert barn kr. 12.000, árið 2008 er styrkurinn kr. 25.000 og árið 2009 verður hann óbreyttur kr. 25.000 á barn.

Markmið og tilgangur Frístundakortsins
 

  • Meginmarkmið Frístundakortsins er að öll börn og unglingar í Reykjavík geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
  • Með Frístundakortinu má greiða að hluta fyrir íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi á vegum félaga og samtaka sem starfa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum.
  • Frístundakortið eykur jöfnuð í samfélaginu og fjölbreytileika í iðkun íþrótta-, lista- og tómstundastarfsemi.
  • Með Frístundakortinu skapast einnig möguleikar til nýrrar starfsemi og sérstakra verkefna sem beinast að ófélagsbundinni æsku í hverfum borgarinnar.

Meginskilyrði félaga sem gerast aðilar að Frístundakortinu er að starfsemin sé á forsendum uppeldislegar gilda og forvarna í víðum skilningi. Starfsemin fari fram undir leiðsögn hæfra starfsmanna og leiðbeinanda sem hæfir starfi með börnum og unglingum.

Styrkhæf starfsemi þarf að vera í 10 vikur samfellt hið minnsta. Ekki er um beingreiðslur til forráðamanna að ræða, heldur hafa þeir rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til niðurgreiðslu á þátttöku- og æfingagjöldum. Heimilt er að nýta styrkinn til niðurgreiðslu fleiri en einnar greinar en þó ekki fleiri en þriggja á hverri önn. Annirnar eru vorönn 1. janúar til 31. maí, sumarönn 1. júní til 31. ágúst og haustönn sem er 1. september til 31. desember. Öll skráning og umsýsla Frístundakortsins fer fram með rafrænum hætti á Rafræn Reykjavík.

Innheimta aðildarfélaga er með ýmsum hætti og er mikilvægt að forráðamenn kynni sér hvernig innheimtu er háttað hjá aðildarfélagi síns barns. Félögum er heimilt að ákveða sjálf lokadag ráðstöfunar á hverri önn svo hægt sé að ganga frá innheimtu eftirstöðva séu þær einhverjar. Ekki er heimilt að flytja styrkinn á milli ára.

Íþróttafélagið Grótta er aðildafélag Frístundakortsins. Hér má nálgast frekari upplýsingar um kortið s.s. reglur og skilyrði, umsóknir félaga og leiðbeiningar fyrir félög og forráðamenn.

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 

Útlit síðu:



handbolti6
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.