Handboltaskóli

Grótta 2

28.7.2011 Handknattleiksdeild : Handboltaskóli og afreksskóli 2011

Handboltaskóli Gróttu verður starfræktur í 3 vikur í sumar, 3. - 19. ágúst fyrir börn fædd frá og með 2005. Í handboltaskólanum verður börnum skipt niður eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers aldurs fyrir sig. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa. Þjálfarar og leikmenn meistaraflokka munu sjá um þjálfun auk annarra góðra gesta. Byrjendur eru velkomnir..

Lesa meira

 
6.fl.karla - Hálfleikur

10.7.2010 Handknattleiksdeild : Handboltaskóli og afreksæfingar Gróttu 2010

Skráning er hafin í handboltaskóla og afreksæfingar Gróttu. Dagana 3. - 20.ágúst fer fram Handboltaskóli Gróttu fyrir krakka fædda 2004-1998. Í handboltaskólanum verður börnum skipt niður eftir aldri til að koma til móts við þarfir hvers aldurs fyrir sig. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn og flóknari æfingar fyrir eldri hópa. Byrjendur er sérstaklega velkomnir. Samhliða handboltaskólanum verða afreksæfingar fyrir iðkendur fædda 1995-1997. Á þeim æfingum verður farið í skot- og tækniæfingar en einnig ýmsir fræðslufyrirlestrar. Lesa meira
 
Gróttustrákar í U15

7.7.2009 Handknattleiksdeild : Afreksæfingar Gróttu 2009: 10.- 21.ágúst nk.

Afreksæfingar Gróttu í handboltanum verða haldnar dagana 10. - 21. ágúst næstkomandi fyrir þá sem eru fæddir á árunum 1994 - 1996. Æfingarnar verða þrisvar sinnum í viku frá kl. 10:30 - 12:30. Æft er mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Innihald æfinganna eru fræðslufyrirlestrar, styrktaræfingar, skot- og tækniæfingar o.fl. Umsjónarmenn verða Davíð Örn Hlöðversson og Arndís María Erlingsdóttir. Lesa meira
 
mynd_306

7.7.2009 Handknattleiksdeild : Handboltaskóli Gróttu 2009: 10.-21.ágúst nk.

Handboltaskóli Gróttu verður í 2 vikur þetta árið. Í skólanum verður börnunum skipt niður eftir aldri. Með þessu móti ætlum við að reyna að koma til móts við þarfir hvers aldurs fyrir sig. Farið verður í algjör grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn en eftir því sem krakkarnir eru eldri, því flóknari verða æfingarnar. Skólinn er fyrir krakka sem verða í 1.- 7.bekk næsta vetur (fædda 2003-1997). Lesa meira
 
6.flokkur kvenna A-lið

22.7.2008 Handknattleiksdeild : Handknattleiksskóli Gróttu 2008: 11.-20.ágúst

Handknattleiksdeild verður með handknattleiksskóla fyrir krakka á aldrinum 6-12 ára (fædda 2002-1996), bæði stráka og stelpur. Handknattleiksskóli Gróttu verður frá kl. 9:00 - 12:00 á morgnana en boðið verður upp á gæslu á milli 8:15 - 9:00 og 12:00 - 12:30. Skólinn hefst mánudaginn 11.ágúst og lýkur miðvikudaginn 20.ágúst með grillveislu. Skólastjóri verður Arnar Freyr Theodórsson, íþróttakennari og nýr liðsmaður meistaraflokks karla í handbolta. Frábærir leiðbeinendur munu aðstoða hann við skólann. Lesa meira
 

Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.