N1-deildin hefst að nýju - Fram í kvöld
Biðin loks á enda. Eftir langt jólafrí og EM-pásu hefst N1-deildin að nýju í kvöld með heillri umferð. Okkar menn í Gróttu mæta Frömurum á Safamýrinni kl. 19:30 og höfum við Gróttumenn allt að vinna. Sem stendur situr liðið á botni deildarinnar en Framarar er í 4.sæti deildarinnar. Gróttuliðið hefur hins vegar æft vel í fríinu og mætir vonandi ferskt núna í fyrsta leik. Fjölmennum á pallana í Framhúsi og styðjum okkar lið.
Lesa meira
Óttar Steingrímsson til liðs við Gróttu
Óttar Steingrímsson er nýr liðsmaður Gróttu en hann kemur frá Fjölni. Óttar er 23 ára gamall, er örhventur og leikur í stöðu hægri skyttu. Óttar var langmarkahæsti leikmaður Fjölnis í fyrra með 102 mörk í 20 leikjum eða rúmlega 5 mörk að meðaltali í leik. Óttar mun án ef styrkja útilínu Gróttuliðsins en hann hefur áður verið í herbúðum liðsins. Það var tímabilið 2008-2009 þegar Gróttuliðið vann 1.deildina og komst í bikarúrslit sælla minninga.
Lesa meira
Herslumuninn vantaði
Grótta mætti FH öðru sinni í þessari viku á fimmtudagskvöld, nú í N1-deildinni. Leikurinn byrjaði illa fyrir okkar menn en fljótlega náðu FH-ingar fjögurra marka forskoti, 1-5. Gróttumenn náðu að minnka muninn næstu mínúturnar en staðan í leikhléi var 12-15, íslandsmeisturunum í vil. Í byrjun síðari hálfleiks náði FH-ingar góðum kafla, líkt og í fyrri hálfleik, og komust mest í 6 marka forskot, 14-20.
Lesa meira
Grótta - FH í N1-deildinni í kvöld
Í kvöld fer fram leikur Gróttu og FH í N1-deildinni í meistaraflokki karla. Leikurinn hefst kl. 19:30. Er þetta önnur rimma þessara liða á stuttum tíma en FH-ingar unnu okkar menn nokkuð sannfærandi síðastliðinn mánudag 18-28. Okkar menn eru staðráðnir að gera betur núna. Fólk er hvatt til þess að mæta og styðja okkar menn.
Lesa meira
Grótta datt út úr bikarnum
Grótta mætti FH í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins í handknattleik á mánudaginn. Það er skemmst frá því að segja að íslandsmeistarar FH tryggðu sér sæti í undanúrslitum eftir nokkuð öruggan sigur á okkar mönnum, 18-28 eftir að staðan hafði verið 15-10 í hálfleik. Grótta lék vel fyrstu 20 mínútur leiksins en eftir það komst FH á lagið.
Lesa meira
Grótta - FH í kvöld í bikarnum
Í kvöld fer fram seinasti leikurinn í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins þegar FH-ingar mæta út á Nes. Framarar, Haukarmenn og HK-ingar hafa nú þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum. Leikurinn hefst kl. 19:30 og hvetjum við alla sem vettlingin geta valdið til að mæta á styðja strákana okkar sem voru grátlega nálægt sínum fyrsta sigri í N1-deildinni á fimmtudaginn sl.
Lesa meira
Lesa meira
Grátlegt tap gegn Aftureldingu
Á fimmtudagskvöld mætti Gróttu liði Aftureldingar í Mosfellsbæ. Fyrir leikinn var Grótta á botninum með 1 stig en Afturelding í næstneðsta sætinu með 4 stig. Leikurinn hafði þess vegna mikla þýðingu fyrir bæði lið. Afturelding byrjaði leikinn mun betur en okkar menn og komust í 6-2. Grótta náði þó að minnka muninn niður í eitt mark 11-10 þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Afturelding spýtti í lófana og náði þriggja marka forskoti fyrir leikhlé, 16-13.
Lesa meira
Afturelding - Grótta í kvöld
Þá er komið að einum mikilvægasta leik tímabilsins þegar við mætum Aftureldingu öðru sinni í deildinni. Fyrri leikurinn endaði með eins marks sigri Aftureldingar og eigum við Gróttumenn því harm að hefna. Leikurinn hefst kl. 19:30 og fer fram í Mosfellsbæ. Það þarf vart að tíunda hversu mikilvægur leikurinn er fyrir liðið en með sigri verðum við í bullandi baráttu áfram um að halda sæti okkar í deildinni.
Lesa meira
Enn eitt tapið
Á fimmtudagskvöld fór fram leikur Hauka og Gróttu í N1-deildinni í handknattleik. Haukamenn tróna áfram á toppi deildarinnar eftir nokkuð auðveldan sigur á okkar mönnum, 29-17. Fyrstu mínútur leiksins gáfu góð fyrirheit, vörnin til fyrirmyndar og sóknarleikurinn þokkanlegur en síðan ekki söguna meir. Sóknarleikurinn var slakur í framhaldinu og fengu okkar menn þess vegna mörg hraðaupphlaupsmörk í bakið. Hálfleiksstaða var 13-6.
Lesa meira
Haukar - Grótta í kvöld kl. 19:30
Í kvöld fer fram næsti leikur karlaliðsins í N1-deildinni. Grótta sækir þá Hauka heim í Schenkerhöllinni að Ásvöllum. Leikurinn hefst kl. 19:30. Við Gróttufólk fengum heldur betur krítík á okkur í seinasta þætti af Íslenska boltanum, sumt réttmætt og annað sem á ekki við rök að styðjast. Sýnum að við styðjum Gróttu jafnt í mótbyr sem meðbyr, mætum í kvöld og látum liðið finna að það sé stutt við þá.
Lesa meira
Lesa meira
Ósk um liðsstyrk
Núna eru meistaraflokkar karla og kvenna í handknattleik í eldlínunni í öllum mótum. Undanfarin ár hefur verið mikill stígandi í öllu starfi innan handknattleiksdeildar. Mikill efniviður er innan félagsins og metnaður til þess að nýta það tækifæri til þess að festa báða flokka á meðal þeirra bestu á komandi árum.
Lesa meira
Lesa meira
Grótta - HK á morgun í N1-deildinni
Næstkomandi fimmtudagin fer fram næsti leikur strákanna okkar í N1-deildinni. Eftir brösótt gengi í deildinni framan af móti styttist alltaf í fyrsta sigurleikinn. Þó að hann hafi komið í bikarnum um daginn, þá gildir það ekkert í deildinni. Sameinumst öll á pallana á fimmtudaginn og styðjum okkar unga og efnilega lið í baráttunni í deildinni.
Lesa meira
Lesa meira
Valur - Grótta í kvöld
Eftir leiki í Eimkipsbikarnum hefst N1-deildin að nýju. Grótta sækir Val heim að Hlíðarenda í Vodafonehöll þeirra Valsara. Bæði þessi lið unnu sína bikarleiki naumlega, Grótta gegn Aftureldingu og Valur fyrstu-deildarlið ÍR. Um er að ræða fyrsta leikinn í 2.umferð íslandsmótsins. Eina stig Gróttu hingað til í deildinni var einmitt gegn Val í fyrstu umferð. Núna verða bæði stigin vonandi tekin. Leikurinn fer fram kl. 19:30.
Lesa meira
Bæði liðin fengu FH í næstu umferð
Dregið var í 8-liða úrslit Eimskipsbikarsins í hádeginu í dag. Grótta var bæði með karlaliðið og kvennaliðið í pottinum. Meistaraflokkur karla fékk sjálfa íslandsmeistarana í FH í næstu umferð en leikið verður á Nesinu 4. eða 5.desember nk. Meistaraflokkur kvenna fékk einnig FH í næstu umferð en liðin léku við hvort annað um seinustu helgi og gerðu jafntefli. Leikurinn fer fram 24. eða 25.janúar nk.
Lesa meira
Karakterssigur fleytti Gróttu áfram í bikarnum
Grótta mætti í kvöld Aftureldingu í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Búast mátti við jöfnum og skemmtilegum leik að Varmá. Gróttumenn hófu leikinn af kraftu og komust fljótlega í 2-0 og 4-2. Á þeim kafla jöfnuðu Mosfellingar leikinn og höfðu síðan undirtökin í leiknum mestan part leiksins. Mest komst Afturelding í 8 marka forskot í fyrri hálfleik en virkilega slakur sóknarleikur skilaði Aftureldingu fjölmörgum hraðaupphlaupsmörkum.
Afturelding - Grótta í kvöld í bikarnum
Í kvöld fer fram leikur í 16-liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Þá mæta okkar menn liði Aftureldingar að Varmá í Mosfellsbæ. Um er að ræða gríðarlega mikilvægan leik en með sigri getur liðið tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum. Við hvetjum því alla Gróttumenn að mæta upp í Mosó og styðja liðið sitt til sigurs, þó að móti blási sem stendur.
Lesa meira
Lesa meira
Grótta fékk ÍR og Aftureldingu í bikarnum
Í hádeginu var dregið í 16-liða úrslit Eimskipsbikarsins, bæði í karla- og kvennaflokki. Grótta getur verið ánægt með dráttinn þó að best hefði verið að fá heimaleiki. Kvennaliðið fékk ÍR og leikur gegn þeim 15. eða 16.nóvember nk. í Austurbergi. Karlaliðið fékk hins vegar Aftureldingu og leikur gegn þeim 13. eða 14.nóvemeber nk. að Varmá í Mosfellsbæ.
Lesa meira
Tap gegn Fram í kaflaskiptum leik
Grótta atti kappi við Fram í N1-deildinni á fimmtudagskvöld. Grótta hóf leikinn af miklum krafti og dugnaði og uppskáru samkvæmt því. Fljótlega komst Gróttuliðið í 5-1 og 6-2 en þá fór leikurinn að jafnast. Lárus Helgi í marki Gróttu hreinlega lokaði rammanum og áttu Framarar í miklum erfiðleikum með góða vörn Seltirninga.
Lesa meira
Grótta - Fram í kvöld
Í kvöld fer fram leikur Gróttu og Fram í N1-deild karla. Eftir bikarsigurinn á sunnudaginn gegn Völsungi er komið að sjálfum íslandsmeistarakandídötunum í Fram. Framarar hafa tvo fyrrum Gróttumenn innan sinna raða, Sigurð Eggertsson og Ægir Hrafn Jónsson en auk þeirra bættist landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson við þeirra hóp fyrir tímabilið. Það verður ekki tekið af Frömurum að þeir hafa á að skipa sterku liði.
Lesa meira
Grótta áfram í bikarnum
Síðastliðinn sunnudag fór karlalið Gróttu norður á Húsavík og spilaði gegn Völsungi. Frá byrjun sáu heimamenn ekki til sólar, Gróttustrákarnir léku sér að þeim og voru nokkuð einbeittir allan leikinn. Fyrri hálfleikur var ágætlega spilaður en staðan í hálfleik var 21-10. Í byrjun seinni hálfleiks misstu Gróttumenn einbeitingu og misstu forystuna niður í 27-17.
Lesa meira

