Grótta - Haukar á laugardag
Grótta - ÍBV á laugardag
FH - Grótta í kvöld í Eimskipsbikarnum
Lesa meira
Fyrsti sigurinn hjá Gróttu
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna unnu á laugardag sinn fyrsta sigur í vetur er þær sóttu lið KA/Þór heim. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda og kom sigurmark Gróttu rúmri mínútu fyrir leikslok. Norðanstúlkur leiddu oftast með 1-2 mörkum og var staðan í hálfleik 13-12 fyrir KA/Þór.
Grótta með 6 stelpur í U-18 ára landsliði kvenna !
Valið hefur verið U18 ára landslið kvenna og á Grótta sex leikmenn í hópnum. Það eru þær Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir, Auður Ásta Baldursdóttir, Eva Björk Davíðsdóttir, Lovísa Rós Jóhannsdóttir, Sigrún Birna Arnardóttir og Sóley Arnarsdóttir. Þessar stelpur hafa staðið sig gríðarlega vel í vetur ásamt sínum félögum í 3.flokki kvenna og hafa nú í annað skipti í vetur verið valdar til æfinga með landsliðinu.
Ósk um liðsstyrk
Lesa meira
Grótta mætir Fram í kvöld
Í kvöld mætir kvennalið Gróttu bikarmeisturum Fram á heimavelli kl. 19:30. Eftir grátlegt jafntefli gegn FH í seinasta leik er Grótta staðráðið að veita Frömurum verðuga keppni í leiknum. Fram er fyrirfram talið annað af tveimur sterkustu liðum N1-deildarinnar og hefur á að skipa gríðarsterku byrjunarliði. Grótta mun þurfa að eiga toppleik til að standast Frömurum snúning en allt er hægt í handbolta.
Bæði liðin fengu FH í næstu umferð
N1-deildin hefst að nýju - HK á miðvikudag
Grótta fékk ÍR og Aftureldingu í bikarnum
Tap gegn Val
Grótta mætti Íslandsmeisturum Val í gærkvöldi í N1-deildinni hérna á Nesinu. Eftir kröftugar upphafsmínútur hjá okkar stúlkum þar sem staðan var meðal annars 3-3 og 6-6 skildu leiðir. Valur var með níu marka forskot í hálfleik, 21:12. Valur vann að lokum með 15 marka mun, 41:25. Þetta var þriðji sigur Vals í deildinni í vetur en jafnfram þriðja tap Gróttuliðsins.
Fyrsti heimaleikur stelpnanna
Töp gegn Haukunum
Haukar - Grótta á laugardaginn
Naumt tap gegn sterku liði ÍBV
Á laugardag fóru stelpurnar í mfl. kvenna til Eyja að spila fyrsta leik vetrarins. Leikurinn var settur á kl. 12.00 en var færður til kl. 17.00 vegna þess að ófært var með Flóabátnum Baldri um morgunin. Um hádegið var orðið fært og liðið fór í frekar erfiða siglingu til Eyja þar sem smá sjóveiki gerði vart við sig. Eyjastúlkur byrjuðu leikinn af krafti og voru með 3 marka forystu mestallan fyrri hálfleikinn en undir lok hálfleiksins kom góður kafli hjá Gróttu og var staðan 15-15 í hálfleik.

