Góður sigur á Haukum
Síðastliðinn laugardag komu Haukastelpur á Nesið til þess að etja kappi við stúlkurnar okkar í N1-deildinni. Nokkurrar taugaspennu gætti fyrstu mínútur leiksins hjá báðum liðum enda mikið undir, baráttan í algleymingi um 6.sæti deildarinnar sem gefur sæti í úrslitakeppninni í vor. Liðin voru hins vegar fljót að ná áttum enda margir feykilega efnilegir leikmenn í báðum liðum.
Grótta - Haukar á laugardag
Grótta - ÍBV á laugardag
FH - Grótta í kvöld í Eimskipsbikarnum
Lesa meira
Fyrsti sigurinn hjá Gróttu
Stelpurnar í meistaraflokki kvenna unnu á laugardag sinn fyrsta sigur í vetur er þær sóttu lið KA/Þór heim. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda og kom sigurmark Gróttu rúmri mínútu fyrir leikslok. Norðanstúlkur leiddu oftast með 1-2 mörkum og var staðan í hálfleik 13-12 fyrir KA/Þór.
Grótta með 6 stelpur í U-18 ára landsliði kvenna !
Valið hefur verið U18 ára landslið kvenna og á Grótta sex leikmenn í hópnum. Það eru þær Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir, Auður Ásta Baldursdóttir, Eva Björk Davíðsdóttir, Lovísa Rós Jóhannsdóttir, Sigrún Birna Arnardóttir og Sóley Arnarsdóttir. Þessar stelpur hafa staðið sig gríðarlega vel í vetur ásamt sínum félögum í 3.flokki kvenna og hafa nú í annað skipti í vetur verið valdar til æfinga með landsliðinu.
Ósk um liðsstyrk
Lesa meira
Grótta mætir Fram í kvöld
Í kvöld mætir kvennalið Gróttu bikarmeisturum Fram á heimavelli kl. 19:30. Eftir grátlegt jafntefli gegn FH í seinasta leik er Grótta staðráðið að veita Frömurum verðuga keppni í leiknum. Fram er fyrirfram talið annað af tveimur sterkustu liðum N1-deildarinnar og hefur á að skipa gríðarsterku byrjunarliði. Grótta mun þurfa að eiga toppleik til að standast Frömurum snúning en allt er hægt í handbolta.
Bæði liðin fengu FH í næstu umferð
N1-deildin hefst að nýju - HK á miðvikudag
Grótta fékk ÍR og Aftureldingu í bikarnum
Tap gegn Val
Grótta mætti Íslandsmeisturum Val í gærkvöldi í N1-deildinni hérna á Nesinu. Eftir kröftugar upphafsmínútur hjá okkar stúlkum þar sem staðan var meðal annars 3-3 og 6-6 skildu leiðir. Valur var með níu marka forskot í hálfleik, 21:12. Valur vann að lokum með 15 marka mun, 41:25. Þetta var þriðji sigur Vals í deildinni í vetur en jafnfram þriðja tap Gróttuliðsins.
Fyrsti heimaleikur stelpnanna
Töp gegn Haukunum
Haukar - Grótta á laugardaginn
Naumt tap gegn sterku liði ÍBV
Á laugardag fóru stelpurnar í mfl. kvenna til Eyja að spila fyrsta leik vetrarins. Leikurinn var settur á kl. 12.00 en var færður til kl. 17.00 vegna þess að ófært var með Flóabátnum Baldri um morgunin. Um hádegið var orðið fært og liðið fór í frekar erfiða siglingu til Eyja þar sem smá sjóveiki gerði vart við sig. Eyjastúlkur byrjuðu leikinn af krafti og voru með 3 marka forystu mestallan fyrri hálfleikinn en undir lok hálfleiksins kom góður kafli hjá Gróttu og var staðan 15-15 í hálfleik.
Stúlkurnar til Eyja á laugardaginn
Heiða og Elín Helga semja við Gróttu
Grótta hefur gert þriggja ára samninga við Heiðu Ingólfsdóttur og Elínu Helgu Jónsdóttur. Heiða Ingólfsdóttir er tvítug en Elín Helga 21 árs gömul. Báðar koma þær úr Fylki en Elín Helga er uppalin í Árbænum og Heiða úr Vestmannaeyjum. Elín Helga getur leyst allar stöður fyrir utan en Heiða er markmaður. Báðar hafa þær leiki marga unglingalandsliðsleiki í gegnum tíðina.
Lesa meiraSunna María til liðs við Gróttu
Grótta hefur gert þriggja ára samning við Sunnu Maríu Einarsdóttir. Sunna María er 22 ára gömul skytta eða leikstjórandi og lék áður með Fylki. Hún var meðal annars markahæsti leikmaður liðsins á seinustu leiktíð með 107 mörk. Enn fremur hefur Sunna María leikið 15 leiki með A-landsliði kvenna og skorað í þeim 10 mörk.
Lesa meira

