Handknattleiksdeild
Grótta 1 með sigur á deildarbikarmóti 5.fl. kvenna eldri
Handbolti - 5.fl. kvenna
Helgina 7.febrúar til 8.febrúar fór fram á Suðurströndinni deildarbikarmót hjá 5 flokki kvenna eldra ári í handboltanum. Grótta er með tvö lið í þessum árgangi og hafa þær staðið sig vel í vetur. Grótta 1 keppti þrjá leiki á laugardaginn, á móti Selfoss-2 sem fór 19-2 fyrir Gróttu , FH 15-7 og ÍBV 21-3. Á sunndagsmorgun léku þær í milliriðli og kepptu við Fylki sem fór 15-4 fyrir Gróttu og Aftureldingu 9-6 og komust þannig í úrslitaleikinn.Úrslitaleikurinn var á móti Val sem Grótta vann 8-5. Þær urðu þar með deildarbikarmeistarar. Glæsilega gert hjá þessum efnilegu stelpum.
Grótta 2 kepptu 3 leiki á laugardeginum, á móti Val sem tapaðist 12-6, Stjörnunni sem tapaðist 12-8 og á móti Aftureldingu-2 sem vannst 11-8. Þær komust ekki í milliriðlanna, en til þess að komast þangað þurfti liðið að vinna 2 leiki.
Við sem höfum mætt á mót ársins og fylgst með þessum stelpum sjáum miklar framfarir hjá þeim á milli móta og erum þess fullviss að það er því að þakka að þær hafa verið duglegar að mæta á séræfingar á sunnudagsmorgnum í vetur. Það er greinilegt að þetta skilar sér bæði í tækni og ekki síst í leikgleðinni hjá stelpunum. Fleiri krakkar mættu taka þær sér til fyrirmyndar og nýta sér þessar séræfingar.
ÁFRAM GRÓTTA


