Handknattleiksdeild

4.fl. kvenna í bikarúrslit

Handbolti - 4.fl. kvenna

23.2.2009

Á föstudaginn mættust Grótta2 og ÍBV í undanúrslitum og úr varð hörku spennandi leikur. Eyja-stúlkur voru með yfirhöndina til að byrja með og virtust gróttu-stúlkur mjög stressaðar og gerðu sig sekar um mikið af mistökum, bæði sókna og varnarlega. Þegar líða fór á leikinn náðu stelpurnar að vinna sig út úr stressinu og fóru að sýna betri leik. Í leiks lok var staðan jöfn og því þurfti að framlengja. Í framlengingu náðu ÍBV stúlkur tveggja marka forskoti og því á brattann að sækja fyrir Gróttu2.

Þá ákvaðu þjálfarar Gróttu að taka tvær stúlkur úr umferð hjá ÍBV. Þetta herbragð virkaði mjög vel og náðu stelpurnar okkar að jafna leikinn og því þurfti að grípa til annarar framlengingar. Í henni náðu stelpurnar frumkvæðinu og leikmenn ÍBV áttu í miklum vandræðum með að ná skoti á markið, vörnin hjá Gróttu var gríðarlega sterk og héldu þær áfram að taka tvo leikmenn úr umferð. Á endanum unnu gróttu stúlkur tveggja marka sigur 26-24 og því komnar í úrslitaleikinn á móti Fylki, sem verður spilaður sunnudaginn 1.mars kl 13:30 í Höllinni.

Einnig má geta þess að Grótta 2 og Fylkir eru í toppbaráttu í deildinni og því má reikna með hörkuleik næstkomandi sunnudag.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.