Handknattleiksdeild

Silfur hjá 4.flokki kvenna - Umfjöllun

Handbolti - 4.fl. kvenna

1.3.2009

Grótta 2 mætti Fylki í úrslitum Eimskipsbikarsins í handbolta síðasta sunnudag. Úr varð hörkuspennandi leikur þar sem úrslitin réðust á loka kaflanum. Stelpurnar höfðu æft mjö vel alla vikuna og þjálfarar liðsins reynt að undirbúa þær sem best fyrir komandi átök. Í upphafi leiks var ljóst að stress og spenna einkenndi bæði lið og þá aðalega Gróttu liðið. Leikmenn beggja liða voru þó fljótir að hrista það af sér og fóru að spila alvöru handbolta. Staðan í hálfleik var 11-10 Fylki í vil.

Í seinni hálfleik hélt spennan áfram og leikurinn bar þess greinilega merki að um úrslitaleik í bikar væri að ræða. Fylkir var yfirleitt alltaf skrefinu á undan og voru þær duglegar að nýta sér líkamsstyrk sinn og brjótast í gegnum vörn Gróttu. Lokatölur leiksins voru 22-19 Fylki í vil en stelpurnar okkar geta borið höfuðið hátt og gengið stoltar af velli. Pressan og stressið var mjög mikið og því munu þær búa af þessari reynslu lengi. Þær gáfust aldrei upp og börðust eins og ljón. Þær voru að spila á móti eldri, reyndari og líkamlegri sterkari stelpum.

Deildin er enn mjög jöfn og ómögulegt að spá fyrir um sigurvegara. Liðin hafa verið að kroppa stig af hvort öðru og ef Gróttu stelpurnar halda á spilunum rétt þá geta þær endað uppi sem sigurvegarar. Þjálfarar, foreldrar og allir Gróttu menn eru mjög stoltir af þeim og sannfærð um að þær eiga eftir að spila fleiri úrslitaleiki á komandi árum.

Áfram Grótta

Markaskorarar Gróttu:

Eva Björk Davíðsdóttir                  6 mörk
Emilía Gunnsteinsdóttir                4 mörk
Sóley Arnardóttir                            3 mörk
Ásgerður Dúa Jóhannesdóttir    3 mörk
Sigrún Arnarsdóttir                         2 mörk
Anna Jia                                            1 mark

 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.