Handknattleiksdeild
Viggó með 3 mörk og Þráinn með 1 mark í sigri á Finnum
Handbolti - 3.fl. karla
U-17 ára landslið karla sigraði í gær Finnland 32-29 á Ólympíuleikum Æskunnar sem fram fara í Finnlandi. Staðan í hálfleik var 18-18. Finnland byrjaði betur og komust meðal annars í 4-1. Íslenska liðið náði þó fljótlega að jafna metin og var jafnt á flestum tölum í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik byrjuðu Finnar aftur betur og komust meðal annars í 26-23 en íslenska liðið sýndi gríðarlegan karakter á lokamínútunum og náði að landa sigri. Viggó Kristjánsson skoraði 3 mörk í leiknum, þar af eitt úr vítakasti. Þráinn skoraði eitt mark í leiknum en stendur öllu jafna vörnina með myndarskap.
Mörk Íslands skoruðu: Guðmundur Hólmar Helgason með 9 mörk, Ísak Rafnsson 7, Geir Guðmundsson 4, Jón Oddsson 3, Viggó Kristjánsson 3(1), Magnús Magnússon 2, Arnar Birkir Hálfdánarson 2, Þráinn Orri Jónsson 1 og Pétur Júníusson 1.
Í markinu varði Sigurður Ingiberg Ólafsson 10 bolta og Arnar Þór Arnarsson 1.
Í dag leikur liðið við Þjóðverja kl.12.30 um 5.- 8. sæti.

