Handknattleiksdeild
Æfingahelgi framundan hjá 3.flokki kvenna
Handbolti - 3.fl. kvenna
3.fl.kvenna hefur æft af krafti frá því í byrjun ágúst. Hópurinn telur 28 leikmenn og munum við senda tvö lið til leiks í Íslandsmótinu í vetur. Stelpurnar eru búnar að leggja hart að sér það sem af er og ætla sér að standa sig mjög vel í vetur. Um helgina verður æfingahelgi sem er mikilvægur liður í undirbúningi liðsins fyrir átök vetrarins.
Byrjað verður á góðri æfingu í kvöld og á morgun laugardag, spila stelpurnar æfingaleik við 4. flokk karla í Gróttu. Hápunktinum verður svo náð á sunnudaginn. Byrjað verður á léttri æfingu í hádeginu, síðan tekur við hádegisverður og hópefli. Að því loknu verður spilaður æfingaleikur við Stjörnuna, skellum okkur svo í sund og endum frábæra helgi á kvöldmat.
Við þjálfararnir erum full bjartsýni fyrir veturinn. Stelpurnar hafa æft gífurlega vel og er óhætt að segja að með þessu áframhaldi munu góðir hlutir gerast í vetur. Í Gróttu er stór hópur af mjög efnilegum leikmönnum sem munu verða aðalsmerki meistaraflokks kvenna í Gróttu áður en langt um líður.
Kveðja,
Sóley og Jónas

