Handknattleiksdeild
Unnu forkeppnina með glans
Handbolti - 4.fl. kvenna
Forkeppni A-liða í 4. flokki kvenna var haldin um helgina í Gróttuheimilinu. Spilaður var fimm liða riðill þar sem tvö efstu liðin fóru beint um í 1. deild, liðið í þriðja sæti fer í umspil og tvö neðsu liðin fara beint í 2. deild.
Gróttu stelpurnar voru búnar að undirbúa sig mjög vel og æfa að krafti. Flensan hafði reyndar sett strik í undirbúninginn en þegar á hólminn var komið hristu þær hana af sér. Grótta spilaði við HK, UMFA, Val og Víking. Til að gera langa sögu stutta þá unnust allir leikirnir og voru stelpurnar að spila hreint frábærlega. Liðið spilaði hörku vörn þar sem barátta og leikgleði var í fyrirrúmi. Í kjölfarið fóru markverðir liðsins á kostum og fékk liðið 8,5 mörk að meðaltali á sig í leik. Það verðru að teljast mjög gott í ljósi þess að spilaðar eru 2x20 mín leikir.
Gróttu liðið er mjög vel mannað og er breiddin eitt aðalsmerki liðsins. Þess vegna keyrðu stelpurnar upp hraðann í öllum leikjunum og voru duglegar að skora úr hraðaupphlaupum.
Greinilegt er að liðið mætir mjög vel þjálfað til leiks og með svona spilamennsku er aldrei að vita hvað getur gerst.
Úrslit mótsins
1. Grótta
2. HK
3. Víkingur
4. Afturelding
5. Valur
Myndir úr keppninni má sjá á myndasíðu Eyjólfs: http://www.quake.is/myndir/gallery/album170

