Handknattleiksdeild

7. og 8.flokkur karla á fullu

Handbolti - 7. og 8.fl. karla

8.10.2009

Nú er handboltinn kominn á fullt hjá yngstu drengjunum í Gróttu. Vel gengur að kenna þeim grunnreglur og eru strákarnir ólmir í að læra nýja hluti. Stöðvaþjálfun, með ýmsum skemmtilegum æfingum, og spil er þeim efst í huga þegar æfingar hefjast og ganga því æfingar vel. Þegar yngstu iðkendur hefja sína handboltaiðkun er mikilvægt að æfingarnar séu skemmtilegar og félagslegir þættir utan æfinga séu virkjaðir.

Þess vegna verður reynt að hafa félagslegar uppkomur a.m.k. einu sinni í mánuði. Það styttist óðum í fyrsta mót hjá 7.flokki karla en það verður helgina 6. - 8. nóvember og verður kynnt nánar þegar nær dregur. Aðeins eitt mót verður hjá 8. flokki karla og verður það helgina 5. - 7. mars.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.