Handknattleiksdeild
Frábær byrjun hjá B-liði 3. flokks kvenna!
Handbolti - 3.fl. kvenna
Stelpurnar í B-liði 3.flokks kvenna tóku á móti B-liði KA/Þórs í gærkvöldi. Þetta var fysti leikur liðsins á Íslandsmótinu og má með sanni segja að þær hafi hafið mótið með glæsibrag. Með frábærum leik í fyrri hálfleik var staðan 17-6 fyrir Gróttustelpum. Það var mjög góður varnarleikur og markvarsla sem og agaður sóknarleikurinn sem skilaði stelpunum þessari góðu hálfleiksstöðu.
Þær slökuðu aðeins á í seinni hálfleik en tryggðu sér engu að síður öruggan sigur 28-16.
Allar leikmenn liðsðins tóku þátt í leiknum og stóðu sig mjög vel. Frábært að byrja veturinn á góðum sigri og eru stelpurnar staðráðnar í að fylgja honum eftir. Næsti leikur liðsins er sunnudaginn 25. október kl. 14.30 á móti liði Fjölnis/Aftureldingar.

