Handknattleiksdeild
Naumt tap í fyrsta leik A-liðs 3.fl.kvenna
Handbolti - 3.fl. kvenna
A-liðið í 3.fl.kvenna spilaði sinn fyrsta leik í vetur gegn ÍR í Austurberginu á fimmtudagskvöld. Gróttustelpur hófu leikinn af krafti og leiddu 5-9 um miðjan fyrri hálfleik. ÍR stúlkur tóku þá til sinna ráða og eftir góðan kafla sem skilaði þeim stöðunni 11-9 í hálfleik. Seinni hálfleikur var mjög spennandi og komust okkar stelpur yfir 17-16 en náðu því miður ekki að halda forystunni og töpuðu naumlega 19-18.
Vörnin var aðalsmerki liðsins í kvöld og ágæt markvarsla hjá bæði Hlíf og Rannveigu. Stelpurnar náðu góðum hraðaupphlaupum en það var helst sóknarleikurinn sem við lentum í vandræðum með. Næsti leikur liðsins er á mánudaginn á móti FH á Nesinu og eru stelpurnar staðráðnar í að gera betur þá.
Markaskorarar Gróttu:
Helga Rún - 7 mörk
Ásrún Lilja - 5 mörk
Helga Þórunn - 2 mörk
Steinunn - 2 mörk
Sædís Birta - 1 mark
Ríkey - 1 mark
Hlíf varð 7 skot í fyrri hálfleik og Rannveig 8 skot í þeim seinni.

