Handknattleiksdeild

4.fl. kvenna - 1 jafntefli og 2 sigrar

Handbolti - 4.fl. kvenna

26.10.2009

Um helgina var sannkölluð handboltaveisla hjá 4 flokki kvenna þar sem leiknir voru þrír leikir í röð sama daginn. B-liðin tvö unnu sína leiki og A-liðið gerði jafntefli.

Grótta2 - ÍR1 (B-lið)

Kl. 16:00 tók Grótta2 á móti ÍR1 og úr varð stórskemmtilegur leikur þar sem stelpur beggja liða lögðu sig 100% fram. Um miðbik fyrrihálfleiks náðu Gróttu-stelpurnar undirtökunum og staðan í hálfleik var 9-2 Gróttu í vil. Í seinni hálfleik héldu þær áfram sama krafti og í raun var sigurinn aldrei í hættu. Allir leikmenn liðsins fengu að spreyta sig og stóðu sig mjög vel. Lokatölur voru 17-10 og hefur liðið unnið einn leik og gert eitt jafntefli hingað til.

 

Grótta - Selfoss (A-lið)

Kl. 17:15 hófst svo leikur Gróttu - Selfoss og er óhætt að segja að hörku varnir og mikil spenna hafa einkennt þennan leik. Selfyssingar byrjuðu betur og náðu strax þriggja marka forskoti. Tóku þá þjálfarar Gróttu leikhlé og breyttu um varnartaktík sem og hrista vel upp í mannskapnum. Það skilaði sér strax og náðu stelpurnar að jafna leikinn. Liðin skiptust svo á að skora og staðan í hálfleik var 11-12 Selfoss í vil. Í síðari hálfleik var sama spennan upp á teningnum og greinilegt að hvorugt lið ætlaði að gefa eitthvað eftir. Gróttu-stelpur leiddu leikinn lengst af og náðu m.a. tveggja marka forskoti um miðbik síðari hálfleiks. Lokamínoturnar voru æsispennandi og átti Grótta skot í stöngina þegar um 15 sek voru eftir. Selfyssingar fengu boltann en náðu ekki að koma skoti á markið og lokatölur urðu 24-24. Gróttu liðið hefur gert jafntefli í báðum leikjum sínum hingað til.

 

Grótta1 ?- FH (B-lið)

Seinasti leikur dagsins var svo kl 18:30 og áttust við Grótta1 og FH. Grótta1 hefur farið vel af stað í mótinu og unnu öruggan sigur um daginn á Stjörnunni 20-6. Í upphafi leiks var alveg ljóst hvert stefndi og greinilegt að Gróttu-stelpurnar voru sterkari aðilinn. Þær spiluðu hrikalega góða vörn þar sem markmaður liðsins varði nánast alla þá bolta komu á markið. Í kjölfarið gátu þær keyrt hratt í bakið á FH. Sóknarleikur liðsins var agaður og vel útfærður. Staðan í hálfleik var 9-4 Gróttu í vil. Síðari hálfleikur var svipaður þar sem stelpurnar okkar hertu á takinu og sýndu styrk sinn. Greinilegt er að lið Gróttu1 er mjög sterk og þessi blanda af eldri og yngri stelpum er að virka mjög vel og lokatölur urðu 19-12 Gróttu í vil. Liðið trónir nú efst í deildinni með tvo sigra.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.