Handknattleiksdeild

3.fl. kvenna: Fyrstu stigin í höfn

Handbolti - 3.fl. kvenna

9.11.2009

Á sunnudag fékk A-liðið í 3.fl.kvenna Fylkisstúlkur í heimsókn. Leikurinn var jafn til að byrja með en með góðri vörn og markvörslu höfðu stelpurnar okkar náð 10-8 forskoti þegar flautað var til hálfleiks. Í seinni hálfleik var vörnin áfram til fyrirmyndar og stelpurnar voru grimmar í að sækja á markið sem skilaði okkur 5 marka forystu, 17-12. Þar voru fremstar í flokki þær Rakel og Guðrún Fjóla, en Rakel skoraði 4 mörk á þessum góða kafla.
               
Ásrún Lilja var afar örugg á vítalínunni og skoraði mikilvæg mörk. Síðustu 15 mínútur einkenndust af stressi að hálfu heimastúlkna, en þær náðu engu að síður að halda fengnum hlut og sigruðu 18-17.
                         
Miklar framfarir hafa átt sér stað hjá þessu skemmtilega liði undanfarnar vikur og má segja að helsti kostur liðsins sé góð breidd. Allar taka þátt og standa sig með mikilli prýði. Næsti leikur liðsins er í Vestmannaeyjum, 22. nóvember.
 
Mörk Gróttu:
 
Ásrún Lilja - 9 mörk
Rakel - 4 mörk
Rebekka  - 2 mörk
Steinunn - 1 mark
Auður - 1 mark
Guðrún Fjóla - 1 mark
 
Rannveig stóð í markinu allan tímann og varði mjög góð skot, 15 talsins.


Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.