Handknattleiksdeild

Bjarney Bjarnadóttir í stuttu viðtali

Handbolti - Mfl. kvenna

17.11.2009

Í tilefni af bikarleik meistaraflokks kvenna á miðvikudaginn fengum við Bjarneyju Bjarnadóttur, leikmann liðsins, til að svara nokkrum spurningum varðandi liðið og veturinn. Leikurinn er gegn Þrótti og hefst kl. 19:30 á miðvikudaginn. Þróttur leikur líkt og Gróttustúlkur í 2.deild kvenna en Grótta trónir á toppi deildarinn en Þróttur á botninum. Allt getur hins vegar gerst í bikarnum og þess vegna þurfa Seltirningar sem og aðrir Gróttumenn að mæta á leikinn og styðja stelpurnar okkar.

1. Leikur á miðvikudaginn gegn Þrótti, hvernig leggst sá leikur í þig?

Hann leggst gríðarlega vel í mig, alltaf gaman að spila bikarleiki :) Þróttur er í sömu deild og við þannig að ég vonast eftir nokkuð jöfnum og skemmtilegum leik.

2. Vitið þið eitthvað um Þróttara?

Við höfum ekki enn spilað við þær þannig að við rennum tiltölulega blint í sjóinn. Þeim hefur þó ekki gengið mjög vel í deildinni, þannig að við teljumst sterkari á pappírunum, en eins og dæmin hafa sýnt eru oft óvænt úrslit í íþróttum, og þá sérstaklega bikarkeppnum, þannig að það er ekkert gefið í þessu.

3. Hverjir eru ykkar styrkleikar?

Ég ætlaði að segja "Ég" en Kári hótaði að taka mig úr liðinu ef ég myndi gera það! En að öllu gamni slepptu þá erum við með ungt og ferskt lið (þó að ég að vísu hækki meðalaldurinn töluvert..!) þannig að við eigum að geta keyrt á nokkuð háu tempói í 60 mínútur. Vantar kannski aðeins leikreynslu og -skilning í liðið á móti öllum þessum ferskleika en það hefur verið stígandi í okkar leik og liðið er að ná að stilla saman strengi sína.

4. Núna hefur ykkur gengið glimrandi vel í byrjun tímabils og unnið alla ykkar fjóra leiki. Hvernig leggst tímabilið í þig?

Það getur ekki annað en lagst vel í mig, erum með góða þjálfara og fínan leikmannhóp, sem er með nokkuð góða breidd, þannig að við eigum að geta rúllað þessu vel í vetur. Og eins og ég sagði áðan þá er stígandi í okkar leik þannig að ég geri ráð fyrir að við munum verða enn betri eftir því sem líður á tímabilið.

5. Eitthvað að lokum?

Ég skipti yfir í Gróttu nú í haust og gæti ekki verið ánægðari með þá ákvörðun. Frábært starf sem er unnið hérna á nesinu og mér hefur liðið gríðarlega vel hérna, bæði sem þjálfara og leikmanni. Þannig að ég vil bara þakka fyrir mig og enda á þeim klassísku orðum: Áfram Grótta



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - ÍR

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 6.mars
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Stjarnan - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 4.mars    
kl. 19:30
Mýrin

 

Grótta - ÍBV

Knattspyrna - Mfl. karla
Sunnudaginn 7.mars
kl. 14:00
Akraneshöll
Lengjubikarinn
 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.