Handknattleiksdeild

Jóla-handboltaskóli Gróttu hefst í næstu viku

Handbolti - Yngri flokkar

15.12.2009

Jóla-handboltaskóli Gróttu verður starfræktur í 5 daga um jólin. Í skólanum verður börnunum skipt niður eftir aldri. Með þessu móti ætlum við að reyna að koma til móts við þarfir hvers aldurs fyrir sig. Farið verður í grunnatriði fyrir yngsta aldurshópinn en eftir því sem krakkarnir eru eldri, því flóknari verða æfingarnar. Skólinn er fyrir krakka sem eru í 1.- 6.bekk (fædd 2003-1998).

Skólinn er starfræktur eftirtalda daga:
Mánudaginn 21.desember
Þriðjudaginn 22.desember

Mánudaginn 28.desember
Þriðjudaginn 29.desember
Miðvikudaginn 30.desember

Krakkarnir þurfa að taka með sér nesti.

Skólinn verður kl. 10:00 - 13:00 en boðið er upp á gæslu á milli 9:00-10:00

Jóla-handboltaskólanum lýkur með grillveislu miðvikudaginn 30.desember.

Skólastjóri verður Davíð Örn Hlöðversson grunnskólakennari, leikmaður meistaraflokks karla og þjálfari 7., 8., 3. og 2.fl. karla

Frábærir þjálfarar og leiðbeinendur aðstoða hann

Verð: 5000 kr

Skráning fer fram á skrifstofu Gróttu í síma 561-1133 eða á netfangið handbolti@grottasport.is. Upplýsingar um skólann er hægt að nálgast á sama stað.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.