Handknattleiksdeild
Lundaspelen - Annar keppnisdagur
Handbolti - 4.fl. karla og kvenna
Núna er annar keppnisdagur á Lundaspelen að kveldi kominn. Leikir dagsins fóru misjafnlega hjá liðunum tveimur. Stelpurnar biðu lægri hlut gegn Elsflether frá Þýskalandi, 18-10 og svo gegn Amager frá Danmörku 16-12. Stelpurnar spila á morgun í B-úrslitum Henstedt-Uhlsburg frá Þýskalandi kl. 10:39 að íslenskum tíma. Strákarnir hins vegar unnu báða sína leiki, fyrst gegn Herrsching frá Þýskalandi 16-11 og síðan gegn Aranes frá Svíþjóð 15-14. Strákarnir skoruðu 4 seinustu mörk leiksins, en staðan var 11-14 fyrir Aranes þegar 10 mínútur voru til leiksloka. Mikill karakter skilaði þessu gríðarlega mikilvægum sigri en með sigrinum komst liðið í A-úrslit.
Strákarnir leika gegn Team Baden 1 frá Þýskalandi í 8-liða úrslitum A-úrslita á morgun. Leikurinn hefst kl. 11:01 að íslenskum tíma. Hægt er að sjá úrslitum beint inn á síðu mótsins, Lundaspelen.com.
Ferðin gengur gríðarlega vel, en á milli leikja hvíla krakkarnir sig vel, borða og spila á spil eða horfa á bíómyndir. Stelpurnar hafa kíkt í búðirnar eylítið en það sem skiptir máli er að krakkarnir eru fókuseraðir á leikina. Annað er aukaatriði.
Með kveðju frá Lundi !
________________________________________________________
Ferðapistill frá foreldrum:
Dagurinn í dag var skipulagður með fjórum leikjum, tveir á hvort lið og framhald keppninnar myndi ráðast, A eða B úrslit.
Stelpurnar byrjuðu fyrst að spila í dag, Fyrri leikurinn var við Elsflether TB. Það sem einkenndi þann leik af okkar hálfu var að stelpurnar voru ekki nógu ákveðnar í sínum aðgerðum, bæði í vörn og sókn. Þessi leikur tapaðist 18-10.
Seinni leikurinn tóku stelpurnar vel á þvi í vörn og sókn, börðust vel í vörninni og markvarslan mjög góð með hana Sóley í markinu. Sóknin gekk vel og stelpurnar fengu góð færi sem hefði verið hægt að nýtast betur. Þessi leikur var í járnum og staðan var 12-12 og lítið eftir en þá kom slæmur kafli hjá stelpunum og leikurinn endaði með fjögurra marka tapi eða 12-16. Stelpurnar spiluðu virkilega fínan handbolta lengstum af í þessum leik og er vonandi góður fyrirboði á B liðaúrslitin á morgun. Þær hafa getuna til að ná langt þar ef þær berjast áfram eins og í seinni leiknum í dag þá er aldrei að vita hversu langt þær komast.
Strákarnir áttu erftitt prógramm í dag, berjast fyrir sætinu í A úrslit. Fyrri leikurinn spilaðist mjög vel, markvarsla, sókn og vörn smullu saman og góður sigur vannst 16-11. Seinni leikurinn var því hreinn úrslitaleikur um A úrslit framundan. Hérna úti er það ekki innbyrðisviðureign sem gildir heldur markatalan og því var ekkert nema sigur sem kom til greina. Leikurinn byrjaði ekki vel og strákarnir spiluðu illa allan leikinn og voru undir 2 mörkum og 3 mínutúr eftir. En strákarnri sýndu mikla seiglu og unnu eins marks sigur 15-14 sem þýðir að þeir eru komnir í 8 liða úrslit á morgun og spila kl 12 á morgun.
Bæði lið hafa átt sína góðu og slæmu kafla í þessun 4 leikjum, en ef þau spila sem lið og eru að taka á því, hendurnar uppi í vörninni, hlaupa HRATT aftur í vörnina og láta boltannn rúlla í sókninni hefur leikur þeirra beggja gengið vel. Þegar þessi hlutir eru ekki í lagi þá hefur verið erfitt hjá þeim enda að keppa við góð lið. Getan hjá krökkunum er til staðar en spurning að hugafarið sé rétt stillt. Ef þessir krakkar halda áfram þá er framtíðin björt hjá Gróttu.
Það þarf ekki að nefna að foreldranir hafa það gott hér í Lundi í 1-2 stiga hita og snjólaus bærinn, aðstaðan góð en verðlagið mætti vera hagstæðara og því er miklum tíma eytt í að greina leiki og annað í góðu yfirlæti á hótelherberginu.
Minnum ykkur á að það er hægt að fylgjast með lýsingu á leikjunum og öðrum úrslitum á heimasíðu mótsins, www.lundaspelen.com
Kveðja
Foreldrar í Lundi
ps fórum í kaffi og vöfflur í dag hjá mömmu Georgs Bjarnfreðarsonar

