Handknattleiksdeild

Lundaspelen - Stelpurnar í 2.sæti i B-úrslitum

Handbolti - 4.fl. karla og kvenna

30.12.2009

Núna hafa bæði Gróttulidin lokið þátttöku sinni á Lundaspelen. Stelpurnar toku sig til og lentu i 2.sæti i B-úrslitin, glæsilegur árangur þad en eftir framlengdan leik, unnu hollensku stelpurnar a gullmarki. Eftir frekar dapra byrjun i mótinu tóku thær sig sannarlega saman i andlitinu og spiludu gríðarlega vel i B-úrslitunum. Þær töpudu gegn þessu sama liði með 10 mörkum í riðlinum en núna sýndu Gróttustelpurnar sitt rétta andlit og börðust eins og ljón.

Riðilinn sem Grótta lék é, var langsterkasti riðlinn og sést það best á því að þau þrjú lið sem fóru i B-úrslitin komust öll í undanúrslit og tvö í úrslitaleikinn. Þau tvö sem fóru i A-úrslitin, duttu út i undanúrslitum og eitt i 8-liða úrslitum.

Strákarnir töpuðu í gær gegn liði Team Baden frá Þýskalandi, 14-11 i 8-liða úrslitum og luku þar með þátttöku sinni. Þetta Team Baden lið komst alla leið i úrslitaleikinn og unnu mótið nokkuð örugglega. Grottuliðið var óheppið i leiknum gegn þeim og hefði sigurinn hæglega getað endað Gróttumegin.

Annars er allt gott að frétta frá Lundi.

__________________________________________________

Foreldrapistill

Þetta er búið að vera spennandi dagur hjá krökkunum og foreldrum.
Stelpurnar spiluðu í B úrslitum í dag og héldu áfram af sama krafti og þær enduðu í gær og eru komnar í úrslit B liða á morgun. Munu spila í fyrramálið úrslitaleikinn.  Frábært hjá þeim að komast þangað eftir erfiða riðlakeppni en þegar baraáttan og keppnisskapið fór í gang þá fór liðið að spila vel sem hefur skilað þeim sæti í úrslitum á morgun.  Þær munu taka dolluna ef þær halda áfram að spila áfram sem liðsheild því það er það sem skiptir máli.
 
Strákarnir spiluðu í morgun í 8 liða úrslitum við Baden, sá leikur tapaðist með thremur mörkum.  Leikurinn var í járnum allan leikinn og komust Baden menn yfir síðustu 3 mínúturnar í leiknum og náðu að halda því forskoti út leikinn.  Baden liðið er svo komið í úrslitaleikinn á morgun.  Gróttuliðið var að spila fínan leik á köflum með Lárus öflugan í markinu og varði hann t.d. 3 víti.  Það var ekki mikið sem skildi þessi lið að og sigurinn hefði getað lent hvorum megin sem var, svo strákarnir þurfa bara að læra af þessum leik og muna að STÆRÐIN skiptir ekki máli heldur getan og samvinna leikmanna.
 
Krakkarnir eru að læra alveg helling að spila á þessu móti, hlutir eru bæði að ganga vel og illa, svona mót fer í reynslubankann hjá þeim og mun nýtast þeim í framtíðinni hvort sem það verður í íþróttunum eða lífinu sjálfu.
 
Í kvöld er svo diskó hjá krökkunum og vonandi skemmta þau sér vel á því og vakna hress í fyrramálið og taka svo úrslitaleikinn, strákarnir og aðrir munu fjölmenna á leikinn og hvetja þær til dáða.
 
Kveðja
Foreldrafélagið í Lundi
 
PS.Allt gott að frétta af foreldrafélaginu hér í Lundi og vöfflurnar í dag voru góðar hjá mömmu Georgs.



 

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.