Handknattleiksdeild
8 Gróttumenn í U16 landsliði HSÍ
Handbolti - 4.fl. karla
Helgina 2. og 3. janúar kom saman úrtakshópur fyrir U16 ára landslið HSÍ. Þetta er í annað skipti í vetur sem að hópurinn kemur saman og var æft tvisvar sinnum á laugardag og einu sinni á sunnudag. Grótta átti 8 glæsilega fulltrúa í hóp þessara sterkustu leikmanna landsins. Þeir stóðu sig allir gífurlega vel á þessum æfingum og sýndu styrk sinn og kunnáttu. Gróttudrengirnir eru fæddir 1994 og 1995 og leika með 4.flokki karla. Glæsilegur árangur hjá þessum flottu drengjum og óskum við þeim til hamingju með þessa viðurkenningu. Þeir sem valdir voru í þennan hóp eru:
Alex Viktor Ragnarsson
Bjarni Guðmundsson
Daði Gautason
Kristinn Sigurðsson
Gunnar Kolbeinsson
Lárus Gunnarsson
Ólafur Ægir Ólafsson
Vilhjálmur Geir Hauksson

Alex Viktor Ragnarsson

Bjarni Guðmundsson

Daði Laxdal Gautason

Gunnar Kolbeinsson

Kristinn Rúnar Sigurðsson

Lárus Gunnarsson

Ólafur Ægir Ólafsson

Vilhjálmur Geir Hauksson

