Handknattleiksdeild

Lundaspelen - Samantekt

Handbolti - 4.fl. karla og kvenna

15.1.2010

Dagana 26. - 31.desember sl. fór 4.flokkur karla og kvenna á mót í Svíþjóð sem ber heitið Lundaspelen og fer fram í háskólaborginni Lundi. 9 strákar og 17 stelpur fóru út auk fjögurra þjálfara. Þess fyrir utan fóru 6 foreldrar á eigin vegum, til þess eins að fylgjast með börnunum sínum.

Lundaspelen er stærsta innanhúsmót í heimi með 8000 þátttakendur á öllum aldri. Leikið er í íþróttahúsum víðsvegar um Lund og nágrenni.

Strákaliðinu gekk ágætlega í sínum riðli, unnu Sävehof 1 frá Svíþjóð og Herrsching frá Þýskalandi nokkuð örugglega en tapaði gegn Ankaret frá Svíþjóð. Úrslitaleikurinn í riðlinum var þess vegna seinasti leikurinn gegn Aranäs frá Svíþjóð. Eftir mikinn baráttuleik, unnu strákarnir glæsilegan eins marks sigur, 15-14 eftir að hafa verið 11-14 undir þegar skammt var til leiksloka. Strákarnir sýndu í þessum leik að maður skal aldrei gefast upp. Mikil fagnarðarlæti brutust út að leik loknum enda strákarnir komnir í 8-liða úrslit á þessu erfiða móti.

Í 8-liða úrslitum mætti Grótta liði Team Baden 1 frá Þýskalandi. Eins og í hinum leikjum liðsins var rennt blint í sjóinn varðandi styrk andstæðinganna. Fyrst þýska liðið hafði komist í 8-liða úrslit hlaut það að vera sterkt enda koma það á daginn. Leikurinn var í járnum allan tímann og skiptust liðin á hafa eins til tveggja marka forystu. Undir lok leiksins sigu Þjóðverjarnir fram úr og unnu 18-14 í leik þar sem sigurinn hefði geta endað hvorum megin sem var. Með þessum úrslitum duttu okkar strákar út en þetta Team Baden 1 lið komust alla leið í úrslitin og gerðu sér lítið fyrir og unnu þau örugglega.

Stelpurnar lentu í gríðarlega sterkum riðli sem samanstóð af Lundegard frá Svíþjóð, Elsflether TB frá Þýskalandi, Brabant frá Hollandi, Amager SK frá Danmörku og auðvitað Gróttu. Því miður gekk riðillinn ekki nógu vel og náðu stelpurnar aldrei að sýna sitt rétta andlit. Lundegard og Elsflether TB fóru í A-úrslitin á meðan Brabant, Amager og Grótta fóru í B-úrslitin.

Eftir dapra frammistöðu í riðlinum var haldinn fundur þar sem farið var yfir gengi liðsins og hvað betur mætti fara. Þar töluðu þjálfarar og stelpur hreint út og leikur liðsins sem og hugarfar var lagað. Í 16-liða úrslitum mættu stelpurnar Hensted- Ulzburg frá Þýskalandi og rúlluðu hreinlega yfir þær. Greinilegt var að liðsfundurinn hafi skilað sér og spiluðu allir leikmenn liðsins mjög vel. Í 8-liða úrslitum mætti liðið Tatrant Bohunice frá Tékklandi og úr varð hörkuleikur þar sem handbolti af gamla skólanum var spilaður. Leikurinn var mjög líkamlegur og hart tekist á. Stelpurnar voru staðráðnar í að láta Tékkana ekki slá sig út af laginu og svöruðu þeim fullum hálsi. Vörn liðsins var gríðarlega sterk og vannst góður sigur og liðið komið í undanúrslit. Þar mættu við FIF frá Danmörku og úr varð hrikalega spennandi leikur. Bæði lið voru staðráðin í að selja sig dýrt og skiptust liðin á að hafa forystu framan að leik. Spennustigið í leiknum var mjög hátt og sýndu stelpurnar úr hverju þær voru gerðar. Þær héldu áfram að spila sterka vörn og skipulagðar sóknarleik þar sem hver og einn leikmaður lagði sitt af mörkum. Í lok leiksins brutust út mikil fagnaðarlæti þegar stelpurnar gerðu sér grein fyrir því að þær voru komnar í úrslit. Ekki er laust við það að nokkur gleðitár hafi fallið og mikil hamingja í loftinu. Spilamennska liðsins hafði verið á hraðri uppleið eftir erfiða byrjun og hver stórleikurinn á fætur öðrum leit dagsins ljós.

Í úrslitum mættu Gróttu-stelpurnar Brabant frá Hollandi en þessi lið höfðu mæst áður í riðlinum þar sem Hollendingarnir unnu öruggan 10 marka sigur. Greinilegt var að stelpurnar voru vel stemmdar og ætluðu þær svo sannarlega að bæta upp fyrir leikinn í riðlinum. Sjálfstraustið og viljinn skein úr hverju andliti og íslenska hjartað sló ört. Leikurinn var vel spilaður af okkar hálfu og í járnum allan tímann. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn og því var gripið til framlengingar. Í henni skiptust liðin á að hafa forystu og spennustigið í hámarki. En var staðan jöfn í lok framlengingarinnar og því var gripið til bráðabana þar sem svokallað gullmark réði úrslitum. Dómarinn tók uppkast og eftir mikla baráttu um boltann var Hollendingunum dæmdur boltinn. Brabant fóru í sókn og tókst að skora markið sem réði úrslitum.

Ferðin heppnaðist einstaklega vel í alla staði. Aðstaðan var til fyrirmyndar og maturinn á mótinu það besta sem völ var á. Frítíminn utan leikja var nýttur til að safna orku fyrir næsta leik en þess fyrir utan var farið á stórleik í sænsku úrvalsdeildinni, Lugi - Ystad, kíkt í búðir og farið á diskótek. Hópurinn þjappaðist vel saman og sköpuðust góðar minningar. Þjálfarar liðanna vilja þakka bæði strákunum, stelpunum sem og þeim foreldrum sem fóru í ferðina kærlega fyrir frábæran tíma. Einnig eiga þeir foreldrar sem eftir urðu heima hrós skilið fyrir alla vinnuna sem fylgdi því að safna fyrir ferðinni. Stelpurnar er heppnar að hafa svona sterkt bakland og ef haldið er rétt á spilunum er aldrei að vita nema þær eigi eftir að ná langt í lífinu, hvort sem það er í íþróttum eða einhverju öðru.

Myndir úr ferðinni má sjá ef smellt er á linkinn: www.picasaweb.com/arnarth

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.