Handknattleiksdeild
Grótta - ÍBV í 2.deild kvenna
Handbolti - Mfl. kvenna
Á laugardaginn leikur Grótta sinn fyrsta heimaleik á árinu þegar Eyjastúlkur koma í heimsókn. Gróttuliðið mætti Þrótti á þriðjudaginn sl. og unnu sannfærandi sigur 30-14 eftir að hafa verið í basli með þær í fyrri hálfleik. Leikurinn á laugardaginn hefst kl. 14:00 en þess má geta að þetta er síðasti leikur liðsins fyrir stórleikinn gegn Fram í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins sem fram fer í næstu viku. Fólk er hvatt til þess að mæta og styðja Gróttu til sigurs.

