Handknattleiksdeild

Kári Garðars: "Leikmenn leggi sig 110% fram"

Handbolti - Mfl. kvenna

19.1.2010

Í tilefni af leik Gróttu og Fram í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins á miðvikudaginn fengum við Kára Garðarsson þjálfara Gróttuliðsins til þess að svara nokkrum spurningum um veturinn og leikinn sem er í vændum. Þrátt fyrir ungan aldur er þetta þriðja tímabilið sem Kári stýrir meistaraflokki kvenna. Hann stýrði liðinu tímabilin 2005-2006 og 2006-2007 og lenti liðið í bæði skiptin í 6.sæti efstu deildar. Á þeim tíma var mikið uppbyggingarstarf í gangi hjá meistaraflokknum og leikmenn margir hverjir ungir að árum, líkt og í dag.

Það hefur gengið vel í vetur hjá Gróttuliðinu og tróna þær á toppi 2.deildarinnar. Er uppskeran í samræmi við væntingar?

Við runnum nokkuð blint í sjóinn í upphafi vetrar þar sem liðið var mikið breytt og ekki alveg ljóst hversu sterk 2. deildin var. Ég myndi segja að sú ákvörðun stjórnarinnar að senda liðið til leiks í 2.deildinni hafi, eftir á að hyggja, verið hárrétt. Með þessu gefst þjálfurum liðsins tími til að undirbúa yngri leikmenn félagsins undir átökin í N1 deildinni næsta vetur auk þess sem góður kjarni af eldri leikmönnum er til staðar hjá félaginu. Liðið hefur spilað vel í vetur og góður andi í hópnum og í kringum liðið einnig. Markmið liðsins eru klárlega að klára veturinn án þess að tapa leik.

Núna er sannkallaður stórleikur á miðvikudaginn gegn N1-deildarliði Fram. Hvernig leggst leikurinn í þig?

Hann leggst vel í mig. Það verður gaman að bera sig saman við eitt af betri liðum landsins og það er mikil tilhlökkun hjá mér og leikmönnum liðsins fyrir þessum leik.

Núna eru nokkrar stelpur með þónokkra reynslu sem úrvalsdeildarleikmenn, sbr. Sóley Halldórsdóttir og Katrín Tómasdóttir. Mun það nýtast í leiknum?

Við erum með nokkra leikmenn sem leikið hafa 2-15 ár í meistaraflokki sem koma án efa til með að hjálpa okkur mikið. Yngri leikmenn liðsins, sem munu bera uppi meistaraflokk félagsins til næstu ára, munu auk þess fá kærkomið tækifæri til að sýna sig og sanna.

Hversu mikill möguleiki er á sigri í þessum leik?

Á hinum sígildu pappírum eru Framstúlkur sigurstranglegri og ljóst að við þurfum að eiga frábæran leik til að leggja þær að velli. Ég legg þó áherslu á það að leikmenn mínir njóti leiksins og leggi sig 110% fram, ef það tekst þá getum við gengið sátt af velli í lok leiks. Við ætlum að gefa allt í leikinn og vonandi sýna fólki það að á Nesinu sé framtíðin björt hvað kvennaboltann snertir.

Eitthvað að lokum?

Kvennalið Gróttu hefur verið flaggskip félagsins, að mínu mati, undanfarin ár og áratugi og meðal annars leikið nokkrum sinnum til úrslita í bikarkeppninni auk þess sem liðið hefur verið í toppbaráttunni nokkur keppnistímabil. Ég vil því hvetja fólk til að koma á leikinn á miðvikudag og hjálpa okkur í að koma liðinu aftur á þann stall sem það var á



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.