Handknattleiksdeild
Frábær árangur meistaraflokkanna
Handbolti - Mfl. karla og kvena
Uppskera haustsins var með mestu ágætum hjá báðum meistaraflokkum Gróttu í handknattleik. Karlalið félagsins hóf loks keppni í efstu deild eftir 13 ára bið. Töluverðar breytingar urðu fyrir tímabilið á skipan liðsins, sem og að Halldór Ingólfsson tók við þjálfun þess af Ágústi Jóhannssyni. Liðið var því í augum margra óskrifað blað og endurspeglaðist það í árlegri spá aðstandenda liða í N1 deildinni þar sem liðinu var spáð falli. Fljótlega varð hins vegar ljóst að liðið gæfi lítið fyrir slíkar hrakspár.
Verkin hafa verið látin tala innan vallar og er staðan nú sú að liðið situr í 6. sæti deildarinnar og hefur alla möguleika á að blanda sér í baráttu um eitt af þeim fjórum sætum er gefa keppnisrétt í úrslitakeppni N1 deildarinnar. Þar að auki hafa drengirnir tryggt sér sæti í undanúrslitum Eimskipsbikarsins og eru því komnir í seilingarfjarlægð frá því að spila um Bikarinn eftirsótta.
Hið unga og stórefnilega kvennalið félagsins hefur unnið alla leiki sína í 2. deildinni og er þar að auki komst liðið í 8 liða úrslit í Eimskipsbikarnum. Þar mætti liðið einu besta liði deildarinnar, Fram en þurfti að lúta í gras gegn ofjörlum sínum.
Greinilegt er að Seltirningar kunna að meta ofangreindan árangur. Mætingin hefur verið frábær á heimaleiki jafnt sem útileiki. Stuðningurinn sem liðinu hefur verið sýndur það sem af er vetri hefur vakið athygli og er öllum sem að liðinu standa mikill innblástur og hvatning til þess að gera enn betur. Enginn hefur verið svikinn af þeirri skemmtun sem boðið hefur verið upp á leikjum vetrarins og ljóst er að gott á bara eftir að verða enn betra með hækkandi sól.
Sjáumst á vellinum !
ÁFRAM GRÓTTA ! ! !

