Handknattleiksdeild

Skeljungur og Handknattleiksdeild Gróttu í samstarf

Handbolti - Mfl. karla og kvenna

4.2.2010

Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Skeljungs og Handknattleiksdeildar Gróttu. Samstarfið felur það í sér að Gróttarar geta sóst eftir því að fá eldsneytiskort eða lykil frá Skeljungi í gegnum Gróttu. Sé það gert mun Handknattleiksdeild félagsins njóta ávinnings í formi 1 kr. af hverjum dældum lítra sem og fastri upphæð þegar tiltekinni notkun hefur verið náð á kortið.

Gróttarinn sem velur það að fara þessa leið mun einnig sjá beinan ávinning umfram það að styrkja sitt félag. Ávinningurinn er í formi marvíslegra afsláttarkjara, m.a. -10 krónum af fyrstu 5 skiptum sem kortið er notað við eldsneytisdælu Skeljungs og/eða Orkunnar.

Handknattleiksdeild Gróttu er afar ánægð með samninginn sem er liður í því að styrkja fjárhagsgrundvöll rekstrarins til lengri tíma. Sérstaklega ánægjulegt er að samstarfið felur í sér beinan ávinning fyrir hvoru tveggja, Handknatteiksdeildina sem og stuðningsmenn.

Forsvarsmenn deildarinnar gera sér miklar vonir um viðtökur verkefnisins meðal Gróttara.

Áhugasamir geta fyllt út umsókn og fengið frekari upplýsingar um samstarfið með því að hlaða niður umsóknareyðublaði hér. 

Útfylltum eyðublöðum er hægt að skila á skrifstofu Gróttu í Íþróttahúsi Seltjarnarness.

Þess má geta samstarfinu verður formlega hleypt af stokkunum með kynningu fyrir leik Gróttu og Vals í kvöld fimmtudaginn 4. janúar.  Kynningin mun fara fram í annálaðri hamborgaraveislu Handknattleiksdeildar og mun hefjast kl. 19:00.

Undirritun-skeljungur

Mynd : Hafsteinn Guðmundsson, formaður Meistarflokksráðs og Jón Páll Leifsson, Framkvæmdarstjóri Markaðssviðs Skeljungs undirrita samninginn góða.

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - ÍR

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 6.mars
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Stjarnan - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 4.mars    
kl. 19:30
Mýrin

 

Grótta - ÍBV

Knattspyrna - Mfl. karla
Sunnudaginn 7.mars
kl. 14:00
Akraneshöll
Lengjubikarinn
 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.