Handknattleiksdeild

Slæmur skellur á Akureyri

Handboti - Mfl. karla

8.2.2010

Gróttumenn flugu norður í land í dag til þess að spila annan leik ársins. Ljóst var að leikurinn yrði gríðarlega erfiður í Höllinni á Akureyri þar sem stuðningurinn hefur verið með eindæmum í vetur. Bæði lið höfðu tapað síðustu leikjum sínum og Akureyri nokkuð illa í Kaplakrikanum.
 
Skemmst er frá því að segja að Akureyri tók strax örugga forystu sem jókst er á leikinn leið.  Lokatölur leiksins urðu 33 - 19 fyrir heimamenn.  Markahæstir okkar manna voru Anton Rúnars með 8 mörk og Hjalti Pálma með 5.
 
Finnur Ingi var ekki með í kvöld vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Val í síðustu viku.  Þá var Heiðar ekki með vegna samkomulags þar um sem gert var við norðanmenn þegar hann gekk til liðs við Gróttu í síðastliðnum mánuði.
 
Engum þarf að dyljast að það munar um að hafa ekki fyrrgreinda leikmenn liðtæka þar sem nokkuð skortir á breidd liðsins. Hvað sem því líður er sá munur sem skildi liðin að í leikslok allt of mikill.  Liðið sýndi á fimmtudaginn síðastliðinn mikinn andlegann styrk og karakter þegar það vann sig tvívegis inn í leikinn og var hársbreidd frá því að ná stigi eða tveimur út úr honum. Greinilegt er að verulega hefur vantað upp á það andlega þrek á Akureyri. 
 
Á morgun hefst lokaundirbúningur fyrir undanúrslitaleikinn í Eimskipsbikarnum sem leikinn verður að Hlíðarenda næstkomandi sunnudag.  Mikilvægt er að beina gremjunni með niðurstöðu norðurferðarinnar í uppbyggjandi farveg.  Á sunnudaginn mun gefast gullið tækifæri til þess að reka af sér sliðruorðið og hefna fyrir tvö grátlega naum töp gegn Valsmönnum í vetur.
 
Upp með sokkana og út með kassann!! 
 
ÁFRAM GRÓTTA !

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - ÍR

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 6.mars
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Stjarnan - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 4.mars    
kl. 19:30
Mýrin

 

Grótta - ÍBV

Knattspyrna - Mfl. karla
Sunnudaginn 7.mars
kl. 14:00
Akraneshöll
Lengjubikarinn
 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti1
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.