Handknattleiksdeild
Stelpurnar í 8.flokki á Ákamóti HK
Handbolti - 8.fl. kvenna
Stelpurnar í 8. flokki kvenna, eldra árið, tóku þátt í Ákamóti HK um síðastliðna helgi. Mótið er vinamót en þar eru mörk ekki skráð. Engu að síður spiluðu þær fjóra leiki og stóðu sig mjög vel. Gaman er að sjá hvað þær hafa tekið miklum framförum í vetur undir stjórn Hildigunnar Hilmarsdóttur þjálfara þeirra.
Á Ákamótinu er hver leikur 1 x 9 mínútur og spilað samkvæmt minniboltareglum HSÍ. 4 leikmenn eru inn á hverju sinni og þar af einn markmaður. Markmaðurinn kemur með í sóknina, þannig að sóknarmennirnir eru alltaf einum fleiri en varnarmennirnir. Með því móti eru mörkin í leiknum fleiri en annars.




