Handknattleiksdeild

Er Hlíðarendi annar heimavöllur Gróttu?

Handbolti - Mfl. karla

16.2.2010

Ofangreind spurning væri hin eðlilegasta fyrri þann sem ekki veit betur, amk. ef marka mátti stemninguna í Vodafonehöllinni í sunnudagskvöld. Enn og aftur gerðu stuðningsmenn Gróttu útvöll að sínum heimavelli með frábærum stuðningi og hvatningu.  Seltirningar hafa farið á kostum á pöllunum í vetur en aldrei sem í þessum síðasta leik.

Óhætt er að segja að eftir stuðningnum sé tekið og geta forsvarsmenn annarra liða í N1 deildinni enn sem komið er aðeins látið sig dreyma um að eiga slíka snillinga að.

Grótta vann klárlega stórsigur á pöllunum í gær og sorglega lítið vantaði upp á að framistaðan hjálpaði liðinu til þess að innbyrða sigur.  Niðurstaðan varð því miður tap með minnsta mögulega mun.

Nú er hins vegar skammt stórra högga á milli því FH-ingar mæta í heimsókn nú á fimmtudaginn og þá er komið að því að landa fyrsta sigri ársins á Nesinu ! !

Sjáumst á fimmtudaginn.   

Áfram Grótta ! !



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.