Handknattleiksdeild

FH-ingar mæta á Nesið á fimmtudag

Handbolti - Mfl. karla

16.2.2010

Það er skammt stórra högga á milli hjá okkar mönnum um þessar mundir. Á fimmtudagskvöldið eru það liðsmenn Fimleikafélagsins úr Hafnarfirði sem mæta á Nesið með "bronsdrenginn" Ólaf Guðmundsson í broddi fylkingar.

Næsta víst er að Gaflarar mæta vel stemmdir með það eitt að markmiði að hefna fyrir þá illu með ferð sem þeir fengu í Krikanum þegar okkar menn unnu þá með 6 marka mun síðasta haust. Þá er ljóst að hvatinn verður ekki minni fyrir Gróttara sem farið er að hungra verulega í fyrstu stig ársins.

Miðað við stuðninginn sem drengirnir fengu gegn Val á útivelli má fastlega gera ráð fyrir að jörð skjálfi á Nesinu á fimmtudagskvöldið.

ÞÁ SKAL ENGINN LÁTA SIG VANTA Í GRÓTTUBORGARA ! GRILLIÐ VERÐUR FUNHEITT FRÁ 18:00 OG FRAM AÐ LEIK ! ! !

MÆTUM METT TIL LEIKS... ;-)

Sjáumst á fimmtudag. ÁFRAM GRÓTTA ! ! !

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.