Handknattleiksdeild

FH hafði betur

Handbolti - Mfl. karla

19.2.2010

Gróttumenn þurftu að játa sig sigraða í hörkuleik á Nesinu á fimmtudagskvöldið. Liðið kom mjög einbeitt til leiks og hafði frumkvæðið allan fyrrihálfleikinn eða allt þar til í blálokin þegar aðkomuliðið náði að komast yfir. Staðan í leikhlé var 14-15.

Jafnt var áfram á flestum tölum fyrri hluta síðari hálfleiks eða allt þar til mjög slæmur kafli kom hjá Gróttu. Hafnfirðingar gengu á lagið náðu 4 marka foryst á einungis 2-3 mínútum. Eftir það komst leikurinn aftur í jafnvægi og liðin skiptust á að skora.  Gróttarar náðu ekki að vinna til baka forskot FH-inga og niðurstan varð 3 marka tap Gróttu, 27-30.

Anton skoraði mest okkar manna, eða 8 mörk, en Arnar Freyr og Heiðar komu þar næstir með 5 mörk.  Heiðar kom gríðarlega ferskur inn í vinstra hornið í síðari hálfleik. Gísli spilaði sinn fyrsta heila leik síðan fyrir áramót og stóð sig mjög vel í markinu. Þá kom Viggó Kristjánsson, aðeins 16 ára, inn í liðið í fjarveru Finns Inga í sínum fyrsta meistaraflokksleik.  Viggó var óhræddur við að taka á skarið og skoraði 2 fín mörk.

Á sama tíma gerðu helstu keppinautar Gróttu, Stjarnan og Fram, jafntefli í sínum leikjum.  Það er því ljóst að Grótta þarf að fara að ná að klára leiki og safna stigum í sarpinn.  Næsti leikur verður 4. mars gegn Stjörnunni í Mýrinni í Garðabæ.  Þar er einfaldlega um einn mikilvægasta leik vetrarins að ræða fyrir okkar menn.  Þar kemur ekkert annað en sigur til greina.

Að lokum ber þess að geta að enn og aftur áttu áhorfendur óaðfinnanlegan leik á Nesinu.  Aðdáunarvert er að sjá hvernig Seltirningar standa bak sínu liði þrátt fyrir að léttur mótvindur næði nú um stundir. Stemmningin var frábær á pöllunum og verður það án vafa í Garðabænum þann 4. mars.

Sjáumst þar!  Áfram Grótta ! !  

 Sjá nánari umfjöllun um leikinn í fjölmiðlum :

http://www.visir.is/article/20100218/IDROTTIR02/530369600/-1

http://www.mbl.is/mm/sport/handbolti/2010/02/18/fh_hefndi_ofaranna_gegn_grottu/



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fotbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.