Handknattleiksdeild
Grótta - Haukar á morgun, sunnudag kl. 16:00
Handbolti - Mfl. karla
Á morgun, sunnudag mun Gróttuliðið mæta bikar - og íslandsmeisturum Hauka í Íþróttahúsi Seltjarnarness. Leikurinn hefst kl. 16:00 en frá kl. 15:00 verður í boði rjúkandi vöfflur í Hátíðarsalnum á spottprís. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir Gróttuliðið sem tapaði seinasta leik gegn Stjörnunni á útivelli. Með sigri getur Gróttuliðið komið sér í ágætismál en með tapi og óhagstæðum úrslitum í leik Stjörnunnar og HK, getur Gróttuliðið dottið í 7.sæti deildarinnar áður en 3.umferðin hefst. Við hvetjum því stuðningsmenn til að fjölmenna á Nesið og styðja liðið til sigurs. Í seinasta leik þessara liða, munaði ekki miklu að Gróttusigur yrði staðreyndin. Áfram Grótta !

