Handknattleiksdeild

Betur má ef duga skal

Handbolti - Mfl. karla

8.3.2010

Á sunnudaginn mætti Gróttuliðið íslands- og bikarmeisturum Hauka í N1-deildinni. Leiknum lauk með, 22-26, sigri Haukamanna en Gróttuliðið var vel og lengi með yfirhöndina í leiknum. Þeir fóru þó illa að ráði sínu og misstu menn klaufalega útaf undir lok leiksins og það varð þeim að falli. Leikurinn fór rólega af stað en heimamenn létu strax vita að þeir ætluðu að láta Haukaliðið hafa fyrir hlutunum. Það var mikil stemning í Gróttuliðinu en þeir leiddu leikinn fyrstu tíu mínúturnar.

Leikurinn fór rólega af stað en heimamenn létu strax vita að þeir ætluðu að láta Haukaliðið hafa fyrir hlutunum. Það var mikil stemning í Gróttuliðinu en þeir leiddu leikinn fyrstu tíu mínúturnar. Sigurbergur Sveinsson vaknaði svo í sókninni hjá Haukum og liðið fór að spila fínan sóknarbolta. Birkir Ívar Guðmundsson var að verja mjög vel í markinu og var með 11 skot varin í fyrri hálfleik.

Eftir að gestirnir komust yfir þá náðu þeir þriggja marka forystu og útlit fyrir að þeir myndu bara sigla fram úr heimamönnum. En svo var ekki, Gróttuliðið kom brjálað til baka og jafnaði leikinn. Haukar misstu svo tvo leikmenn útaf og voru því tveimur færri undir lok fyrri hálfleiks.

Heimamenn gengu á lagið, nýttu sér liðsmuninn vel og skoruðu tvö mikilvæg mörk áður en blásið var til leikhlés. Atli Rúnar Steinþórsson, leikmaður Gróttu, fór á kostum á línunni með fimm mörk og stemningin á Nesinu frábær. Staðan í hálfleik, 11-9, Gróttu í vil.

Gróttuliðið kom enn sterkara til leiks í síðari hálfleik og voru til alls líklegir. Þeir komust þremur mörkum yfir og spiluðu flotta vörn. Það var svo komið að Sigurbergi Sveinssyni sem lét vita af því að hann ætlaði liði sínu öll stigin úr þessum leik. Hann skoraði sex mörk í röð og öll skot hans enduðu í netinu á þessum tímapunkti. Birkir Ívar Guðmundsson, markvörður Hauka, var frábær og varði hvað eftir annað með tilþrifum.

Leikurinn var mjög spennnandi allan síðari hálfleik en heimamenn brenndu sig á því að missa menn út af fyrir klaufaskap og má segja að það hafi kostað þá sigurinn í leiknum. Haukamenn silgdu fram úr þeim síðustu fimm mínúturnar og leiknum lauk með, 22-26, sigri gestanna.

Leikmenn mættu klárir í slaginn í dag með motturnar sínar en greinilegt var að nokkrir leikmenn taka þátt í "Karlmenn og krabbamein" því nokkrir leikmenn skörtuðu þessum líka glæsilegu mottum.

Mörk Gróttu:
Atli Rúnar Steinþórsson 6
Jón Karl Björnsson 5/4
Hjalti Þór Pálmason 5
Anton Rúnarsson 2
Ægir Hrafn Jónsson 1
Davíð Örn Hlöðversson 1
Arnar Freyr Theódórsson 1
Davíð Benedikt Gíslason 1


Varin skot:
Gísli Guðmundsson 15

Næstu leikur liðsins er gegn HK í Digranesinu núna á fimmtudaginn.
Leikurinn er 1.leikurinn í 3.umferðinni og hefst leikurinn 19:30

____________________________________________

Umfjöllun tekin af www.visir.is

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

HK - Grótta

Knattspyrna - Mfl. karla
Miðvikudaginn 28.ágúst     kl. 20:00
Kópavogsvöllur
 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti5
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.