Handknattleiksdeild

Deildarmeistaratitill í höfn

Handbolti - Mfl. kvenna

8.3.2010

Stúlkurnar í meistaraflokki kvenna léku gegn ÍR sl. laugardag. Fyrir leikinn var ljóst að jafntefli myndi duga stúlkunum til að tryggja sér sigur í deildinni og þar með deildarmeistaratitil. Það voru því einbeittir leikmenn sem mættu til leiks staðráðnir í að ná markmiði sínu og tryggja fyrsta titil meistaraflokks kvenna hjá Gróttu.

Fyrri hálfleikur fór vel af stað og leiddu Gróttustúlkur allan tímann. Varnarleikurinn var þó eilítið hikstandi en batnaði til muna þegar liðið fór í 6-0 vörn með þær Agnesi Guðmundsdóttur og Katrínu Tómasdóttur fyrir miðri vörninni. Sóknarleikurinn var afar vel útfærður og vel skipulagður allan hálfleikinn en þær Tinna Laxdal Gautadóttir og Hildur Marín Andrésdóttir voru fremstar í flokki í sóknarleiknum. Það fór svo að stúlkurnar leiddu með þremur mörkum í hálfleik, 12-9 eftir að Hildur hafði skorað tólfta markið úr aukakasti eftir að flautað hafði verið til hálfleiks.

Síðari hálfleikur byrjaði af miklum krafti og heimastúlkur skoruðu fjögur fyrstu mörk hálfleiksins og staðan því orðin 17-9.

Varnarleikurinn á þessu tímabili var frábær sem skilaði sér í ódýrum mörkum úr hraðaupphlauapum og seinni bylgju. Gestirnir úr Breiðholtinu náðu ekki að ógna heimastúlkum að ráði það sem eftir lifði leiks. Lokatölur voru 24-17

Það var því ljóst að sigur í deildinni var öruggur þrátt fyrir að liðið eigi tvo leiki eftir, gegn Víking og Þrótti. Stelpurnar hafa leikið vel í vetur og sýnt það og sannað að framtíðin er björt hvað kvennaboltann varðar. Nú er um að gera fyrir leikmenn liðsins að klára þá tvo leiki sem eftir eru í deildinni og koma svo sterkar inn í úrslitakepnnina sem haldin verður í byrjun apríl.

Markaskor:

Hildur Marín Andrésdóttir - 10
Tinna Laxdal Gautadóttir - 5
Katrín Tómasdóttir - 2
Helga Rún Hlöðversdóttir - 2
Ásrún Lilja Birgisdóttir - 1
Sandra Björk Halldórsdóttir - 1
Agnes Guðmundsdóttir - 1
Auður Ólafsdóttir - 1
Sigríður Svala Jónasdóttir - 1

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

HK - Grótta

Knattspyrna - Mfl. karla
Miðvikudaginn 28.ágúst     kl. 20:00
Kópavogsvöllur
 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.