Handknattleiksdeild
Gróttarar snúi bökum saman á endasprettinum!
Handbolti - Mfl. karla
Leikur Gróttu & Hauka síðastliðinn sunnudag markaði lok 2. umferðar N1 deildarinnar í vetur. Óhætt er að segja að uppskera þeirrar umferðar hafi verið undir væntingum. Eftir ljómandi árangur í fyrstu leikjum vetrarins stóð liðið upp með 8 stig úr 9 deildarleikjum um síðustu áramót. Þrátt fyrir að liðið hafi á köflum spilað prýðilega í þeim leikjum sem leiknir hafa verið það sem af er ári, þá hefur enn ekki tekist að tryggja stig í hús. Flestir leikjanna hafa verið járnum lengsta af og tapast með minnsta mun.
Meiðsli lykilmanna höfðu neikvæð áhrif á slagkraft liðsins þegar leið á veturinn. Þannig glímdu bæði Ægir og Gísli Guðmunds við þrálát meiðsli í lok síðasta árs og byrjun þessa. Þá varð liðið fyrir mikilli blóðtöku nú í febrúar þegar ljóst var að Finnur Ingi væri með brotið bein í hönd. Ljóst er að af frekari þáttöku hans verður ekki það sem eftir lifir vetrar.
Þrátt fyrir að mótvindur hafi blásið það sem af er ári þá er óhætt að fullyrða að andinn í hópnum sé enn mjög sterkur. Aðeins hefur vantað herslumuninn í flestum af þeim leikjum sem tapast hafa og er það sá herslumunur sem drengirnir er staðráðnir í að draga fram í næstu leikjum.
Þó árangurinn hafi látið á sér standa að undanförnu er mikilvægt að horfa til þess að Grótta er ennþá í 6 sæti deildarinnar, þ.e. sama sæti og liðið var í við upphaf desembermánaðar síðastliðins. Það sæti þurfa Gróttumenn að verja með kjafti og klóm á næstu vikum. Takist það verður áframhaldandi sæti meðal þeirra bestu tryggt þann 8. apríl næstkomandi.
Nú fer í hönd mikilvægasta leikjalota vetrarins en einir 7 leikir verða leiknir á tímabilinu frá 10. mars - 8 apríl.3 af þessum 7 leikjum verða leiknir á heimavelli Gróttu, þar af verða hinir mikilvægu leikir við Fram og Stjörnuna, en ljóst er orðið að baráttan í neðri hluta deildarinnar mun verða milli þessara liða.
Læt ég vera að fjölyrða um mikilvægi þess að allir Seltirningar og Gróttarar nær og fjær snúi bökum saman og styðji við bakið á drengjunum nú á lokasprettinum. Öllum á að vera það ljóst og er ég sannfærður um að enginn láti sitt eftir liggja í þeim efnum.
Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að tryggja að áframhald verði næstu árin á þeirri miklu skemmtun sem boðið hefur verið upp á á Nesinu í vetur.
Sjáumst á vellinum! Áfram Grótta ! ! !
F.h. meistaraflokksráðs Gróttu,
Hafsteinn Guðmundsson

