Handknattleiksdeild
Nýir formenn heimaleikja- og unglingaráðs
Handbolti - Mfl. karla og kvenna
Stefán Smári Skúlason hefur tekið við sem formaður heimaleikjaráðs og þar með jafnframt sem stjórnarmaður í handknattleiksdeild Gróttu. Stefán er Gróttufólki að góðu kunnugur, enda hefur hann og konan hans Dísa, í fjöldamörg ár lagt hönd á plóg í starfi félagsins.
Björg Fenger er nýr formaður unglingaráðs og jafnframt sem stjórnarmaður í handknattleiksdeild. Björg sat í stjórn deildarinnar á síðasta starfsári og var þar á undan í meistaraflokksráði kvenna. Þá er hún á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Handknattleiksdeild Gróttu fagnar því að fá að njóta krafta Bjargar og Stefáns áfram og væntir mikils af þeirra starfi á komandi misserum.

