Handknattleiksdeild

Geir Sveins: "Greinilega vel haldið utan um málin hérna úti á Nesi"

Handbolti - Mfl. karla

18.3.2010

Eins og flestum er kunnugt, þá var Geir Sveinsson ráðinn þjálfari Gróttu um helgina eftir að Halldór Ingólfsson hætti með liðið. Geir Sveinsson gamall refur í bransanum, var landsliðsfyrirliði til fjölda ára og lék erlendis í nokkur ár. Jafnframt var Geir valinn Íþróttamaður ársins 1997. Við fengum Geir til að setjast niður með okkur og svara nokkrum spurningum um ástæðu komu hans á Nesið, liðið og framhaldið.

Geir, velkominn á Nesið, af hverju valdir þú Gróttu ?

Takk fyrir það...þetta bar allt saman brátt að...ég var svo sem ekkert á leið í þjálfun en þeir hringdu báðir í mig, Gústi Jóh og Mummi, en þeir voru báðir aðstoðamenn mínir hjá Val á sínum tíma, til að athuga hvort ég væri til í að taka þetta verkefni að mér. Það má segja að ég hafi verið tilbúin að gera þetta fyrir þá, þetta er afmarkað verkefni í stuttan tíma og svo felst í þessu auðvitað ákveðin áskorun sem alltaf er gaman að takast á við. Ég hef áður fengið svona áskoranir en tímasetningarnar hafa ekki hentað fyrr en nú.

Hefur þú fylgst vel með N1-deildinni í vetur ?

Svona þokkalega....ég hef reynt að sjá sem mest af Valsleikjum í vetur auk þess sem ég var að lýsa leikjum fyrir jól á RÚV og er ég því eitthvað inn í því sem er að gerast.

Hvernig líst þér á liðið eftir fyrstu æfingarnar ?

Vel...þarna er góð blanda af eldri og reyndari leikmönnum sem og ungum og efnilegum og það er greinilegt að það er haldið vel utan um málin hérna út á Nesi.

Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðsins ?

Veikleikinn er klárlega skortur á örvhentum leikmönnum en styrkleikinn er að þarna eru drengir með fína reynslu og þetta virðist vera samhentur hópur sem vill gera vel.

Núna er liðið í harðri fallbaráttu, hverja telurðu möguleika liðsins á að halda sér uppi í deildinni ?

Þeir eru auðvitað klárlega til staðar og liðið hefur alla burði til þess að halda sér uppi og í raun ekkert sem segir að liðið sé á leið niður. Hins vegar má lítið út af bera...hópurinn er þunnskipaður og við í raun ekki með neinn örvhentan leikmann sem er stórt vandamál. Það verður bara að taka einn leik fyrir í einu og fara í hann með því hugarfari að vinna. Svo sjáum við í lokin hvað það hefur fært okkur.

Núna er leikur við Íslandsmeistara Hauka á fimmtudaginn, hverjar verða áherslur þína og liðsins fyrir þann leik ?

Eigum við ekki bara að segja að þær komi í ljós á fimmtudaginn!

Eitthvað að lokum?

Áfram Grótta!
______________________________________
Við þökkum Geir kærlega fyrir spjallið og vonumst eftir fjölda fólks á Ásvelli í kvöld kl. 19:30.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd3
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.