Handknattleiksdeild
Bikarafhending hjá meistaraflokki kvenna
Handbolti - Mfl. kvenna
Nú á miðvikudaginn átti að fara fram leikur Gróttu og Þróttar í 2.deild kvenna. Eftir þann leik átti lið Gróttu að fá afhentan deildarmeistaratitilinn í 2.deildinni. Því miður varð lítið úr leiknum þar sem Þróttarastúlkur gáfu leikinn vegna forfalla en Gróttustúlkur fengu engu að síður bikarinn góða við sérstakar kringumstæður. Fjölmiðla- og markaðsfulltrúi HSÍ afhenti Gróttu bikarinn í Hátíðarsalnum við mikla ánægju.
Nú tekur við úrslitakeppnin í 2.deildinni þar sem Grótta mætir því liði sem lendir í 4.sæti deildarinnar. Á þessari stundu er ekki víst hvaða lið það verður en leikurinn mun fara fram 10.apríl nk. á hlutlausum velli.

Stúlkurnar ásamt þjálfurum og liðsstjóra með bikarinn góða

