Handknattleiksdeild
4.fl. karla - Tvöfaldir deildarmeistarar 2010
Handbolti - 4.fl. karla
Um helgina lauk deildarkeppni allra þriggja liða 4.flokks karla og nú er úrslitakeppnin eingöngu eftir. 4.flokkur karla náði þeim frábæra árangri að tryggja sér tvo deildarmeistaratitla um helgina, í A-liðum 1.deild og B-liðum 2.deild. Frábær árangur hjá þessum sterka hóp.
Niðurstaða deildarkeppninnar var eftirfarandi:
Grótta B2 léku í 2.deild í vetur. Í þessu liði eru leikmenn á yngra ári og auk þess að þónokkrir leikmenn úr 5.flokki spiluðu með liðinu í vetur. Um helgina léku þér gegn HK og sigruðu öruggulega 22-8, en voru búnir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn fyrir þann leik. Þeir spiluðu 18 leiki í deildinni í vetur, unnu 15, gerðu eitt jafntefli og töpuðu tveimur leikjum og enduðu með 146 mörk í plús. Þetta lið hefur tekið miklum framförum í vetur og bætt sig leik frá leik. Með því að sigra 2.deildina tryggðu þeir sig inní 8-liða úrslitakeppnina og mæta þar Fram. Frábær árangur hjá þessum drengjum og óskum við þeim til hamingju. Nú er bara að mæta sterkir inní úrslitakeppnina.
Grótta B1 lék í 1.deild í vetur. Í þessu liði er blanda af leikmönnum af yngra og eldra ári. Um helgina luku þeir deildarkeppninni með góðum sigri á Fjölni 27-17 og enduðu í þriðja sæti deildarinn, 4 stigum frá efsta sæti. Þeir spiluðu 14 leiki í deild í vetur, unnu 10, gerðu eitt jafntefli og töpuðu þremur. Liðið hefur staðið sig vel í vetur og leikið frábærlega á köflum. Þeir sýndu frábæran leik gegn Fram á heimavelli og sigruðu þá örugglega, en voru nokkuð langt frá sínu besta í leik gegn Stjörnunni fyrir rúmri viku. Með sigri þar hefðu þeir átt möguleika á deildarmeistaratitli en dagurinn var ekki þeirra. Þeir sýndu einnig í vetur frábæra leiki í bikarkeppninni, þar sem þeir lögðu A-lið Vals að velli í framlengdum leik og töpuðu naumlega fyrir A-liði Aftureldingar. Nú tekur við undirbúningur fyrir úrslitakeppnina, en þeir koma til með að mæta FH eða KA þar. Liðið hefur sýnt það í vetur að þarna eru margir og góðir leikmenn sem mynda gott lið.
Grótta A-lið lék í 1.deild í vetur. Um sl. helgina léku þér gegn HK þar sem sigur þurfti að vinnast til þess að tryggja deildarmeistaratitilinn. Sá leikur vannst nokkuð örugglega 34-24 eftir að jafnræði hafði verið með liðum í fyrri hálfleik. Niðurstaðan var því að A-liðið sigraði deildina og hampaði sigurlaunum eftir leik á laugardaginn, lið lék 16 leiki í vetur, vann 12, gerði 1 jafntefli og tapaði þremur. Þetta er frábær árangur í ljósi þess að deildarkeppni A-liða 4.fl.karla hefur verið æsispennandi og jöfn í allan vetur. Liðið hefur verið að bæta leik sinn jafnt og þétt í vetur og eru nú farnir að spila sem góð heild. Þarna eru margir leikmenn sem verið hafa í U16 ára landsliðúrtaki HSI í vetur og efnilegar strákar á ferð. En tímabilinu er ekki lokið hjá þeim fremur en öðrum liðum 4.fl.karla. Þeir leika í 8-liða úrslitum gegn Haukum eða Þór Akureyri.
8-liða úrslit hjá 4.flokki karla fara fram kringum 8.-11.apríl. Náist sigrar þar verður úrslitahelgin 17. og 18.apríl.
Við hvetjum sem flesta til þess að fylgjast með 8-liða úrslitum hjá þessm drengum í byrjun apríl, því þarna er á ferð gífurlega efnilegur hópur af handboltamönnum.

A-lið
Efri röð: Arnar þjálfari, Vilhjálmur Geir, Ólafur Ægir, Daði, Kristinn og Bjarni
Neðri röð: Alex Viktor, Brynjólfur, Lárus, Egill og Viktor Orri

B2-lið
Efri röð: Arnar þjálfari, Andri Geir, Einar Þór, Sæmundur, Hlynur Rafn, Styrmir, Steinn Arnar, Gunnar Ben, Finnbogi og Magnús Agnar þjálfari
Neðri röð: Hjalti, Arnór, Björn V, Vilhjálmur Gunnar, Bessi J, Aron Dagur og Þorgeir
Hlekkur á myndir frá leikjum A-liðs og B2 gegn HK sl. laugardag er að finna að, en þar tóku þessi lið á móti deildarmeistaratitlum. Að sjálfsögðu var Gróttuljósmyndarinn Eyjólfur Garðarsson á svæðinu:

