Handknattleiksdeild

4.fl. kvenna - Tvöfaldir deildarmeistarar

Handbolti - 4.fl. kvenna

2.4.2010

Um síðustu helgi lauk deildarkeppni 4.flokks kvenna í handbolta.

Stelpurnar urðu deildarmeistarar í A-liðum í 1.deild og B-liðum, auk þess að lenda líka í 2.sæti í B-liðum. Frábær árangur hjá stelpunum. Framundan er síðan úrslitakeppnin og það verður spennandi að fylgjast með því hvernig þeim á eftir að ganga þar.

A-lið:

Grótta spilaði í 1.deild í vetur og eftir jafntefli í fyrstu tveimur leikjunum óx liðið hratt og var nánast óstöðvandi í deildinni. Liðið er aðallega skipað leikmönnum á eldra ári. Stelpurnar enduðu á toppi deildarinnar með 32 stig og duttu þær út í 16 liða úrslitum í bikarnum á móti A-liði Víkings. 

Tölfræði - Deild:

Leikir 18
Sigrar 15
Jafntefli 2
Töp 1

Skoruð mörk í leik 23,77 (meðaltal)
Mörk fengin á sig í leik 19,16 (meðaltal)

B-lið:

Grótta1 spilaði í 1.deildinni og má segja að þær hafi rúllað henni upp. Liðið var blandað af eldri og yngri leikmönnum flokksins. Stelpurnar yfirspiluðu hin liðin hvað eftir annað og ljóst var frá upphafi að þær færu alla leið í ár. Þær duttu út í 16 liða úrslitum í bikar á móti A-liði Stjörnunnar. 

Tölfræði- Deild:

Leikir 18
Sigrar 17
Töp 1

Skoruð mörk í leik 18,05 (meðaltal)
Mörk fengin á sig í leik  10,94 (meðaltal)

B-lið:

Grótta2 spilaði einnig í 1.deildinni í vetur og stóðu þær sig frábærlega og enduðu í 2.sæti deildarinnar með 25 stig. Liðið er skipað leikmönnum á yngra ári og má segja að þær hafi komið öllum í opna skjöldu með hröðum og skemmtilegum handbolta. Liðið datt út í 8 liðar úrslitum bikars á móti A-liði Stjörnunnar.

Tölfræði - Deild:

Leikir 18
Sigrar 11
Jafntefli 3
Töp 4

Skoruð mörk í leik  15,11 (meðaltal)
Mörk fengin á sig í leik  14 (meðaltal)


4.fl.kvenna_tvofaldir_deildarmeistarar

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.