Handknattleiksdeild
Grótta - Fram á mánudaginn - Með sigri er sætið tryggt
Handbolti - Mfl. karla
JÆJA ! ! Nú verður einfaldlega allt brjálað á Nesinu. Á mánudaginn fer fram leikur Gróttu og Fram í N1-deildinni. Eftir frábæra frammistöðu í síðustu leikjum er Gróttan komin í aðstöðu til þess að tryggja og innsigla markmið vetrarins í næsta leik. Framarar munu mæta dýrvitlausir á Nesið enda komnir upp við vegg í botnbaráttunni. Stemmningin var frábær í húsinu síðastliðinn miðvikudag og nú skal gert enn betur til þess að tryggja í hús stigin sem staðfesta munu áframhaldandi veru liðsins í N1 deildinni ! ! !
GRÓTTUGRILLIÐ verður sjálfsögðu á sínum stað og eru allir hvattir til þess að mæta snemma í hús og njóta stemmningarinnar. Grillið hefst kl. 18:00.
EF ÞÚ ÆTLAÐIR ÞÉR AÐ MÆTA Á EINN HANDBOLTALEIK Í VETUR...ÞÁ ER ÞETTA LEIKURINN SEM ÞÚ ÆTTIR AÐ VELJA !!
Sjáumst á mánudaginn.
ÁFRAM GRÓTTA ! ! !

