Handknattleiksdeild
Tap gegn Fram. Örlögin ráðast á fimmtudag
Handbolti - Mfl. karla
Grótta lék gegn Fram í gærkvöldi á heimavelli. Með sigri hefði Grótta tryggt sér 6. sæti deildarinnar. Stuðningsmenn Gróttu fjölmenntu á völlinn og studdu vel við bakið á liðinu en um 600 áhorfendur sáu leikinn. Liðið náði þó ekki að sýna sinn besta leik að þessu sinni og laut því miður í gras, 26-22. Grótta er þó enn í 6. sæti með 14 stig en Fram er nú með 13 stig í 7. sæti. Stjarnan er á botninum með 11 stig.
Framarar vel studdir af fylgismönnum sínum, a.m.k. þeim sem ekki þurftu frá að hverfa eftir misheppnaða tilraun til að spara sér aðgangseyrinn, komu mjög grimmir til leiks. Augljós batamerki hafa verið á leik liðsins eftir að Alfreð Finnsson tók við stjórn þess. Fram náði strax forystu í leiknum á upphafsmínutum og hélt henni út allan leikinn og geta einkum þakkað það markverði liðsins sem varði eins og elgur frá fyrstu mínútu.
Staðan var 13-10 í hálfleik. Gróttumenn börðust vel í síðari hálfleik en náði aldrei að ógna Frömurum af neinu viti. Lokatölur urðu sem fyrr segir 26-22.
Erfitt er að benda á leikmenn hjá Gróttu sem stóðu upp úr. Gísli Guðmundsson varði þó ágætlega í markinu. Aðrir áttu ekki sinn besta dag.
Mörk Gróttu skoruðu:
Anton Rúnarsson 7/3,
Hjalti Þór Pálmason 5/1,
Viggó Kristjánsson 3,
Atli Rúnar Steinþórsson 2,
Jón Karl Björnsson 2
Heiðar Þór Aðalsteinsson 1,
Matthías Árni Ingimarsson 1,
Ægir Hrafn Jónsson 1.
Síðasta umferð deildarinnar fer fram á fimmtudag. Grótta leikur þá við Val á Hlíðarenda. Á sama tíma leika innbyrðis aðalkeppinautar Gróttu, þ.e. Stjarnan og Fram. Grótta getur með sigri tryggt sér sæti í deildinni á næsta ári. Leikurinn hefst kl. 19.30 á fimmtudag og er skyldumæting hjá öllum stuðningsmönnum.
_________________________________________
Að sjálfsögðu var Eyjólfur Garðarsson ljósmyndari á staðnum og tók þessar skemmtilegu myndir: http://www.quake.is/myndir/gallery/album281

