Handknattleiksdeild
Valur - Grótta: Örlögin ráðast !
Handbolti - Mfl. karla
Á fimmtudaginn fer fram seinasta umferðin í N1-deildinni. Við Gróttumenn mætum Val í fjórða sinn í vetur og fer leikurinn fram í Vodafone-höll þeirra Valsara. Markmiðið er áfram eitt og aðeins eitt... 6. sætið! Tvö stig eru sem fyrr í boði á fimmtudaginn og Valur eina hindrunin. Það er fullreynt að það geti komist upp í vana að tapa með minnsta mun að Hlíðarenda og því mun ekkert nema sigur koma til greina í þetta skiptið. Allir Gróttarar nær og fjær eru hvattir til þess að mæta og verða í senn vitni að því að "Valsgrýlan" sé grafin og sætið í deildinni tryggt ! Mætum öll að Hlíðarenda á fimmtudaginn!

