Handknattleiksdeild

Hildur Marín í prófíl

Handbolti - Mfl. kvenna

8.4.2010

Nafn: Hildur Marín Andrésdóttir

Fæðingarár: 1989

Hvenær byrjaðir þú að spila með meistaraflokki? fyrsta ári í unglingaflokki

Hvernig myndirðu lýsa sjálfum þér? ljóshærð, blá eygð, leggjalöng, sílíkon og þrýstnar varir.

Áhugamál utan boltans: ljóðalestur, counter strike og svo spila ég á fagot.

Hver er þinn eftirlætisíþróttamaður? Katrín Andrésdóttir að sjálfsögðu.

Hvernig finnst þér liðinu hafa gengið í vetur? Maður getur ekki verið annað en sáttur við árangurinn. Við fórum í gegnum deildina með aðeins einn tapleik á bakinu sem ég tel góðan árangur, sérstaklega ef litið er til þess hversu nýtt og ungt lið við erum með. Kári og Sóley eru búin að gera góða hluti með liðið.

Er þetta mikilvægt skref í uppbyggingu á meistaraflokki kvenna fyrir N1-deildina næsta vetur? Já, liðið er búið að öðlast mikla reynslu og ég tel það mikilvægt veganesti í N1-deildina.

Nú er leikur í kvöld gegn FH, hvernig leggst leikurinn í þig? Mjög vel, við erum búnar að æfa stíft yfir páskana og ætlum okkur ekkert nema sigur.

Hvað þarf að gerast til að Grótta sigri í þeim leik? Allar leggi sig 110% fram og komi hungraðar í leikinn.

Hverjir eru helstu kostir Gróttu? Við erum ungar og sprækar stelpur - sérstaklega kata ;) svo auðvitað frábær andi í liðinu.

Hverjir eru helstu gallar Gróttu? eins og það er nú mikill kostur hvað við erum ungar er það einnig galli því við höfum mjög litla reynslu í meistarflokk.

Eftirminnilegasta atvik úr boltanum? Fyrsti sigurinn á móti stóru systir:)

Hvert er vandræðalegasta atvik sem þú hefur lent í í boltanum? Það var nú ekkert vandræðanlegt fyrir mig en Kári roðnaði nú heldur mikið þegar ég strippaði fyrir hann um daginn þegar ég kom of seint í leik sökum vinnu.

Hver er þinn erfiðasti mótherji? hotstuff102 í war of worldcraft.
 
En auðveldasti mótherjinn? Fannar Þór Friðgeirsson í fifa.
 
Eitthvað að lokum sem þú vilt nefna eða koma til skila? Ég vil endilega hvetja fólk til að mæta á leikinn og styjða við bakið á okkur. 8. leikmaðurinn getur skipt sköpum - og þá er aldrei að vita nema skvísan taki fagotið upp í hálfleik og kveiki í lýðnum. Áfram Grótta :)

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.