Handknattleiksdeild

Grótta fer í umspil

Handbolti - Mfl. karla

9.4.2010

Síðasta umferð í N1-deild karla í handbolta fór fram í gærkvöldi. Fyrir leiki kvöldsins var Grótta í 6. sæti deildarinnar með 14 stig. Fram var í sjöunda sæti með 13 stig og Stjarnan með 11 í botnsætinu. Með því að halda sjötta sæti hefði sæti í deildinni verið tryggt fyrir Gróttu. Sjöunda sætið þýddi umspil um laust sæti deildarinnar að ári. Áttunda sætið er botnsætið og merkir fall úr deildinni. Voru okkar menn því í baráttu við Fram um sæti í deildinni.

Okkar menn mættu stórveldi Vals, sjálfum drengjum séra Friðriks Friðrikssonar, að Hlíðarenda. Með jafntefli eða betri úrslitum hefði sæti í deildinni að ári verið tryggt. Ekki fór eins og að var stefnt og tap gegn Val staðreynd þar sem lokatölur urðu 25-20. Á meðan vann lið Fram sigur gegn Stjörnunni og tryggði sér 6. sæti deildarinnar. Efnilegt lið Stjörnunnar lenti í neðsta sæti og fer niður. Er eftirsjá af þeim.

Leikur kvöldsins var furðulegur á að horfa. Fjölmargir áhorfendur, flestir stuðningsmenn Gróttu, urðu vitni að leikhúsi fáránleikans. Spilaði þar inn í hið sérstaka dómarapar leiksins, þeir Vilbergur Flóvent og Brynjar. Vilbergur dæmir fyrir íþróttafélagið Fram og Brynjar fyrir Þrótt.

Lesendur hafa nú þegar áttað sig á því að tvennt fer vart saman, þ.e. annars vegar staðreyndin sem lýst var með setningunni hér að framan:

"voru okkar menn því í baráttu við Fram um sæti í deildinni"

og hins vegar staðreyndin sem var svofellt lýst:

"Vilbergur dæmir fyrir íþróttafélagið Fram"

Nú er það svo að allir sæmilega viti bornir menn átta sig á því að það fer illa eða alls ekki saman að láta dómara frá liði í fallbaráttu, eins og Fram var fyrir leik kvöldsins, dæma í lokaumferð Íslandsmóts leik annars liðs sem á í þessari sömu fallbaráttu, sbr. lið Gróttu í kvöld. Hið ótrúlega gerðist, að fulltrúi Fram dæmdi leik Gróttu í kvöld!

Þess skal getið að stjórn handknattleiksdeildar Gróttu mótmælti þessari tilhögun og kom á framfæri áhyggjum af augljósum hagsmunaárekstrum í þessum efnum við HSÍ þegar ljóst var hverjir áttu að dæma leikinn, sem lá fyrir um hádegisbil á leikdegi. Dómaranefnd HSÍ skellti skollaeyrum við ábendingum Gróttu og lítillækkaði sjálfa sig konunglega um leið. Dómaranefndin kastaði jafnframt keitu yfir allt starf Gróttu og er hlutaðeigendum starfsmönnum dómaranefndar HSÍ og þar með kjörnum fulltrúum HSÍ í heild sinni þakkað fyrir það. "Rök" dómaranefndar HSÍ voru þau að dómarar sem dæma fyrir tiltekin félög eru aðeins vanhæfir þegar um er að ræða leiki hjá þeim félögum sem þeir dæma fyrir. Þeir eru því ekki vanhæfir, að mati dómaranefndar HSÍ, að dæma hjá félögum, sem eiga í samkeppni við þeirra heimafélög !!! Breytir engu þó um sé að ræða lokaumferð í Íslandsmóti !!! Þó ýmsir menn séu ýmsu vanir fer nú líklega ansi nærri að fáranleika allra tíma sé náð.

Þeir sem hafa komið að starfi Gróttu í vetur og lagt hönd á plóg í sjálfboðavinnu klóra sér vitanlega í hausunum yfir dellu sem þessari. Menn spyrja sig til hvers er verið að leggja á sig vinnu í þágu einhvers, og það um mánaða- og jafnvel áraskeið þegar yfirsamtökin, HSÍ, svo stórkostlega og svívirðilega hrauna yfir starfið sem unnið er af hendi.

----

Leikurinn sjálfur spilaðist þannig að Grótta var yfir í hálfleik með einu marki, 12-11. Leikmenn Gróttu voru svo meira og minna einum færri allan síðar hálfleik. Það er þyngra en tárum taki að fara yfir fáránleikann sem átti sér stað af hálfu yfirvalda leiksins. Lokatölur urðu 25-20.

Bestu leikmenn Gróttu voru hinn síungi, Magnús Guðbjörn Sigmundsson, og hinn ungi, Viggó Kristjánsson. Þá voru þeir Matthías Ingimarsson og Ægir Hrafn Jónsson góðir í vörninni allan leikinn.

Dómarar leiksins voru sem áður segir Brynjar Þróttari og Vilbergur Framari.

Eins og áður segir náðu Fram 6. sæti og þurfa ekki að fara í umspil um sæti í deildinni að ári.

Handknattleiksdeild Fram heldur úti síðu á Facebook og setti inn á síðu sína eftir leikinn eftirfarandi status: Frábær sigur á Stjörnunni, eftir mikinn báráttuleik. 6.sætið er okkar. ÁFRAM FRAM!!

Vilbergur dómari setti "like" á þennan status !!!


- EEÞ

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Haukar

Handbolti - Mfl. kvenna
Laugardaginn 4.feb
kl. 14:00
Seltjarnarnes
 

Fram - Grótta

Handbolti - Mfl. karla
Fimmtudaginn 2.feb
kl. 19:30
Framhús

 

Allir leikir


Útlit síðu:



handbolti4
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.