Handknattleiksdeild
Grótta í úrslitaleikinn - í kvöld kl. 19:30
Handbolti - Mfl. kvenna
Kvennalið Gróttu komst í gærkvöldi í úrslitaleik 2.deildar kvenna þegar liðið vann FH-stúlkur hérna á Nesinu 27-23. Grótta hafði yfirhöndina í leiknum allan leikinn en um miðjan síðari hálfleik komust Hafnfirðingar fullnálægt okkar stúlkum. Með góðri vörn á þeim kafla sigldu okkar stúlkur aftur framúr og innbyrðu fjögurra marka sigur eins og fyrr sagði 27-23.
Markaskor Gróttu:
Sigríður Svala Jónasdóttir - 7 mörk
Hildur Marín Andrésdóttir - 6 mörk
Tinna Laxdal Gautadóttir - 5 mörk
Katrín Viðarsdóttir - 4 mörk
Agnes Guðmundsdóttir - 2 mörk
Rebekka Guðmundsdóttir - 2 mörk
Katrín Tómasdóttir - 1 mark
Liðið leikur í kvöld kl. 19:30 úrslitaleikinn í 2.deildinni þegar liðið mætir reynslumiklu liði Víkinga hérna á Nesinu. Stelpurnra þurfa ykkar stuðning !

