Handknattleiksdeild

Meistaraflokkur kvenna Íslandsmeistari í 2. deild kvenna!

Handbolti - Mfl. kvenna

12.4.2010

Á föstudaginn spilaði meistaraflokkur kvenna úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í 2. deild kvenna. Eins og sannir Gróttumenn/konur vita unnu stelpurnar deildarkeppnina sannfærandi og nú var komið að þeim stóra. Gestirnir á nesinu voru Víkings konur.

Leikurinn var jafn til að byrja með en með frábærum varnarleik og vel útfærðum sóknum komust okkur stelpur sér í góða stöðu 13-10.

Eftir smá vandræði í sóknarleik liðsins í seinni hálfleik náði Víkingurinn að minnka muninn og eftir mjög spennandi lokamínútur jöfnuðu gestirnir leikinn úr vítakasti þegar leiktíminn var búinn, 24-24. Framlengja þurfti leikinn og þá fór aldrei á milli mála hvort liðið ætlaði sér sigur í leiknum! Okkar stelpur skoruðu fjögur mörk á móti einu Víkingsmarki í framlengingu og tryggðu sér Íslandsmeistaratitillin með28-25 sigri á eldspræku Víkingsliði, sem skipað er mörgum „gömlum" stórstjörnum úr boltanum.

Með þessum leik lauk frábærum vetri hjá meistaraflokki kvenna. Þessi vetur hefur verið ungum leikmönnum mjög mikilvægur og myndaður hefur verið sterkur hópur sem mun koma Gróttu aftur í fremstu röð í kvenna handboltanum á næstu árum!

Grotta_islandsmeistari_i_2.deild_kvenna

Til baka, Senda grein, Prenta greinina

 


Næstu leikir

Grótta - Þróttur R

Knattspyrna - Mfl. karla
Laugardaginn 11.sept
kl. 14:00
Gróttuvöllur
 

Allir leikir


Útlit síðu:



fimleikamynd2
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.